Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Sena og Arion banki hafa bæst í eigendahóp framleiðslufyrirtækisins Glassriver. Framkvæmdastjóri segist ekki geta gefið upp hve stóran hluta hinir nýju eigendur eignast í fyrirtækinu en segist vongóður að með þessu verði rekstur fyrirtækisins tryggur og segir síðustu misseri hafa verið mikla rússíbanareið. 27.1.2026 19:30
Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur engar kveðjur fengið frá flokksforystunni í Samfylkingunni eftir prófkjörið um helgina þar sem hún laut í lægra haldi gegn Pétur Marteinssyni í oddvitaslag. Hún segist spennt fyrir komandi baráttu og hlakka til að kynnast Pétri betur. 27.1.2026 17:40
Birta og LV skoða mögulegan samruna Stjórnir Birtu lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður til að meta fýsileika mögulegs samruna sjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá báðum lífeyrissjóðum. 27.1.2026 17:07
Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Eigendur rafbíla af gerðinni Tesla og þá sérstaklega af gerðinni Tesla Y eru hvattir til þess að fylgjast vel með ástandi bíla sinna af hálfu FÍB. Tilefnið eru fréttir af því að tæplega helmingur Tesla Y bíla komist ekki í gegnum fyrstu skoðun í Danmörku. 26.1.2026 21:31
Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Leiðsögumaður varð vitni að fjölda ferðamanna gera sér ferð út á ísinn í Kerinu á Suðurlandi síðdegis í gær. Eigendur þess segjast taka málið alvarlega og að brugðist verði við, stranglega bannað sé að fara út á ísinn. 26.1.2026 20:02
Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Húsið að Hagamel 55 sem um áratuga skeið hefur hýst starfsemi leikskólans Vesturborgar hefur kvatt götuna. Undanfarna daga hafa vinnuvélar unnið við að rífa húsið sem er 101 árs gamalt en tökumaður Sýnar leit þar við. 26.1.2026 17:11
Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Of einföld mynd hefur verið dregin upp af veikindaforföllum á vinnumarkaði og látið að því liggja að þau séu einstaklingsbundin heilbrigðisvandamál. Nýjustu gögn frá Noregi, Svíþjóð og Danmerku benda hinsvegar til þess að kerfislægar ástæður liggi að baki, álag, mannekla og sífellt kröfuharðara vinnuumhverfi þar sem streita, kvíði og þunglyndi vegi sífellt þyngra. 26.1.2026 16:46
Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sextán manns leituðu aðstoðar Rauða krossins í Reykjanesbæ í gærkvöldi vegna eldsvoðans í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í bænum í nótt. Ein fjölskylda var aðstoðuð með gistingu vegna brunans. 26.1.2026 15:29
„Það átti að taka mig í karphúsið“ Íbúi í Breiðholti er orðinn langþreyttur á bílastæðaskorti fyrir utan eigið heimili. Hann hefur orðið fyrir hótunum þeirra sem sækja bílastæðin og segir íbúa ráðþrota. 23.1.2026 20:02
Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Íbúi í Seljahverfi í Reykjavík hefur sett í loftið nýja vefsíðu þar sem sjá má kort yfir það sem hann kallar raunverulegt ástand borgarinnar. Hann segir um að ræða borgaralegt tilkynningakerfi og vonar að borgin bregðist við skemmdum. 23.1.2026 00:59