Lengsti klukkutími ævinnar Kvikmyndin Dimmalimm fjallar um konu sem lokar sig inni í íbúð sinni í Vínarborg og tekst á við eigin geðveiki. Myndin er rétt rúmur klukkutími en líður ofurhægt vegna klisjukennds handrits, skorts á framvindu og langdreginna teygðra sena. 4.3.2026 07:02
Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Sviðshöfundar héldu sitt fyrsta þorrablót um helgina í safnaðarheimili Fríkirkjunnar. Rúmlega fimmtíu sviðshöfundar létu sjá sig, átu súran mat og flatbökur og stigu trylltan dans. 3.3.2026 20:03
Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Um helgina var framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kynntur með pompi og prakt í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Á fjórða hundrað manns voru meðal gesta og fjölmörg þekkt andlit úr pólitíkinni. 3.3.2026 15:02
„Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Enginn lék Davíð Oddsson jafnoft í gegnum tíðina og grínistinn Örn Árnason. Þeir þekktust lítið en voru málkunnugir og hittust nokkrum sinnum. Davíð vissi að það þýddi ekki að reiðast hirðfíflinu og hafði gaman af eftirhermum Arnar. Ein ráðlegging Davíðs til Arnar er sérstaklega eftirminnileg. 3.3.2026 11:28
Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík og fyrrverandi borgarstjóri, og Milla Ósk Magnúsdóttir, yfirframleiðandi hjá Act 4, buðu til kokteilboðs á 101 Hóteli á föstudagskvöld. 2.3.2026 16:59
Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Sagt er að Rothschild-fjölskyldan fjármagni á víxl fasískar og kommúnískar byltingar, stýri veðrinu með geimleiserum, dreifi pestum um jarðarkringluna og jafnvel að hún hafi einkaleyfi á Covid-19. 2.3.2026 15:20
Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Ákvörðun um að taka þátt Sölku Sólar Eyfeld af dagskrá Rásar 2 hefur vakið hörð viðbrögð hlustenda og hollvina Ríkisútvarpsins. Fjölmargir kalla eftir skýringum á málinu og vilja að ákvörðuninni verði snúið við. Útvarpsmaðurinn Óli Palli segir fólk og þætti koma og fara á Ríkisútvarpinu og dagskrárstjóri Rásar 2 segir ákvörðunina hluta af viðameiri dagskrárbreytingum. 2.3.2026 14:24
Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bandaríska leikkonan Susan Sarandon segir umboðsskrifstofuna UTA hafa látið hana róa eftir að hún lýsti yfir stuðningi við Palestínu og síðan þá hafi reynst ómögulegt að fá hlutverk í Hollywood. 2.3.2026 10:57
„Valsreiturinn... í Pyongyang“ Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið. 27.2.2026 17:10
Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Bandaríski trúðurinn Eric Broomfield, sem kallar sig Jelly Boy the Clown og býr á Íslandi, var handtekinn um borð í flugvél Icelandair í Keflavík á leið til Bandaríkjanna á þriðjudag. Ástæðan var rafmagnstæki, sem hann notar í sýningum sínum, sem lögreglan taldi vera heimagerða sprengju. Hann var yfirheyrður og dúsaði í fangaklefa í fimm klukkutíma áður en honum var sleppt. Hann hefur ferðast um allan heim með tækið og aldrei áður lent í öðru eins. 27.2.2026 15:36