Teknóhátíð á Radar alla helgina Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Dubfire spilar á tónlistarhátíðinni Libertyfest á klúbbnum Radar um helgina. Hátíðin er haldin í annað sinn um helgina og stendur frá föstudegi til sunnudags. Skipuleggjendur stefna á að halda hana árlega héðan í frá. 14.6.2024 08:00
Frumvarp um bætta stöðu leigjenda strandar hjá ríkisstjórn Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir þingkona Framsóknarflokksins segir það stefnu velferðarnefndar að ljúka meðferð á frumvarpi innviðaráðherra um húsaleigulög fyrir þinglok. Frumvarpið hefur það markmið að bæta réttarstöðu leigjenda. Þingmaður stjórnarandstöðu segir málið stranda á ríkisstjórninni sjálfri. Þau geti ekki komið sér saman um hvernig eigi að ljúka þingi og það tefji þetta mál, eins og önnur. 14.6.2024 06:45
Grunur um mansal á Gríska húsinu Þrír voru handteknir í aðgerð lögreglunnar við Gríska húsið á Laugavegi fyrr í dag. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild lögreglunnar segir aðgerðir lögreglunnar tengjast gruni um vinnumansal á staðnum. Með lögreglu var starfsmaður Skattsins. 13.6.2024 15:52
Lögregluaðgerð á veitingastað í miðbænum Lögregla er að störfum við veitingastaðinn Gríska húsið á Laugavegi í miðbæ Reykjavíkur. Að sögn vegfaranda var einn leiddur út af staðnum í járnum. 13.6.2024 12:06
Willum blandar sér í málið og útskýrir bréfið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur nú blandað sér í umræðu ráðherra um netsölu áfengis með tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem hann fer yfir bréfið sem hann sendi Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra fyrr í þessum mánuði. Bréfið varð til þess að Sigurður Ingi sendi lögreglu erindi um málið. 13.6.2024 10:50
Þjóðaróperan alls ekki „úti í kuldanum“ Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, segir það alrangt að Þjóðaróperan sé „úti í kuldanum“. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að hún verði að veruleika og taki til starfa 1. janúar á næsta ári, 2025. 13.6.2024 08:55
Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Loka þurfti einum vinsælasta ferðamannastað í Grikklandi, Akrópólis í Aþenu, í dag vegna mikils hita. Þá var einnig skólum lokað og gefin úr viðvörun frá heilbrigðisyfirvöldu. Hitabylgja gengur nú yfir landið. Methiti, miðað við árstíma, var í dag og verður á morgun í Aþenu. Hitastigið gæti náð 43 gráðum. 12.6.2024 23:44
Um tólf vopnuð útköll lögreglu og sérsveitar í hverri viku Alls fór lögreglan á Íslandi í 180 útköll á síðasta ári þar sem hún þurfti að vopnast. Flest voru útköllin á höfuðborgarsvæðinu, eða alls 97. Sérsveitin fór í alls 461 vopnuð útköll á síðasta ári. Samanlagt eru það 558 útköll eða um 12 útköll á viku. 12.6.2024 22:23
Piparúði á mótmælendur barst að þingmönnum Pírata Lögregla beitti piparúða á mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið í kvöld. Nokkrir þingmenn Pírata voru á svæðinu þegar piparúðanum var hleypt af og barst hluti piparúðans að þeim svo þá sveið í augun. 12.6.2024 22:22
„Vinstri vængurinn er ekki brotinn, en hann er laskaður“ Eva Dögg Davíðsdóttir þingkona Vinstri grænna sagði í ræðu sinn í eldhúsdagsumræðum á þingi í kvöld mikilvægt að verja vinstrið og koma í veg fyrir skautun. Hún ræddi tímann og mikilvægi ákvarðana sem teknar eru í nútíð fyrir framtíð. 12.6.2024 21:45