Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Meðferðarheimilið Lækjarbakki hóf störf í nýju húsnæði í Gunnarsholti og tók á móti sínu fyrsta barni í gær. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að opnunin marki mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu. 7.3.2026 09:45
Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Masoud Pezeshkian, forseti Íran, segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf „draum sem þeir ættu að taka með sér í gröfina“. Íranir og Ísraelar héldu loftárásum sínum áfram í nótt og í morgun. 7.3.2026 08:12
Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Gul viðvörun er í gildi á meirihluta landsins þar til klukkan um hádegi eða seinni part í dag. Lengst eru viðvaranir í gildi á Norðurlandi eystra, Ströndum, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, eða til klukkan 16. Viðvörun rennur fyrst út í Breiðafirði klukkan 12 en svo klukkan 14 á Suðurlandi og á miðhálendi. Sums staðar eru líkur á eldingum líkt og í gær. 7.3.2026 07:33
Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Tveir menn voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu ávana- og fíkniefna. Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er málið í rannsókn. 7.3.2026 07:22
Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Gul viðvörun er í gildi vegna eldinga á Suðurlandi. Veðurfræðingur segir eldingarnar að mestu hafa verið bundnar við syðsta hluta landsins fyrir hádegi en veðrið sé að færast vestar. Fréttastofa hefur frétt af eldingum í Mosfellsbæ síðdegis í dag og þá var einnig greint frá rafmagnsleysi í Þorlákshöfn. 6.3.2026 15:03
Pálmi til liðs við Sagafilm Pálmi Guðmundsson, fjölmiðla- og framleiðandi, hefur verið ráðinn til starfa hjá Sagafilm þar sem hann mun gegna starfi viðskipta- og verkefnastjóra. Pálmi var áður forstöðumaður þróunarmála hjá Árvakri en hætti þar um áramót. 6.3.2026 13:48
Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum. 6.3.2026 12:54
Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki. 6.3.2026 10:59
„Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Sé brýn nauðsyn eða lífi eða heilsu sjúklings ógnað með yfirvofandi hætti á þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks að víkja fyrir verndarskyldu. Gunnar Ármannsson lögmaður segir að annars eigi þagnarskyldan að gilda. Skrá eigi ofbeldi eða grun um það og tilkynna fáist leyfi frá sjúklingi. Hafni sjúklingur aðstoð verði heilbrigðisstarfsfólk að meta hættu og tilkynna telji þeir brýna nauðsyn til. 6.3.2026 08:41
Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Kröpp og djúp lægð er núna vestur af landinu. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar gengu skilin yfir landið í nótt og erum við nú í hlýjasta hluta veðurkerfisins. Úrkoman á engu að síður að vera blönduð samkvæmt spá, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum. 6.3.2026 07:28