Fréttamaður

Lillý Valgerður Pétursdóttir

Lillý er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Allt lýð­ræðið þurrkað út“

Djúpur ágreiningur hefur verið innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins allt kjörtímabilið og er hann meðal ástæðna þess að tveir borgarfulltrúar hafa sagt skilið við flokkinn. Þeir ætla að stofna nýjan óháðan borgarstjórnarflokk.

Kynferðisbrotum sem teljast sér­stak­lega hættu­leg fjölgar

Fjörutíu konur leituðu til Bjarkarhlíðar á síðasta ári eftir að hafa verið beittar kynferðisofbeldi í sérstaklega hættulegum aðstæðum. Teymisstýra segir málum sem þessum hafa fjölgað og gerendur ganga sífellt lengra sem sé áhyggjuefni.

Sjúk­lingar enn á göngum bráðamóttökunnar

Sjúklingar liggja enn á göngum bráðamóttöku Landspítalans mánuði eftir að starfsfólkið lýsti ófremdarástandi þar og krafðist aðgerða. Formaður Félags bráðalækna bindur vonir við að boðaðar aðgerðir stjórnvalda hafi áhrif með vorinu en ljóst sé að bregðast hefði þurft miklu fyrr við.

Vaxandi ótti við lang­varandi á­tök

Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð.

Rætt við stjórnar­and­stöðuna um at­kvæða­greiðslu um ESB

Ákvörðun um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið verður lögð í hendur þjóðarinnar í lok sumars. Búast má við átökum um málið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu en það mun koma til kasta Alþingis strax eftir helgi. Birgir Olgeirsson fréttamaður fer ítarlega yfir málið í kvöldfréttum klukkan 18:30 og ræðir við þingmenn stjórnarandstöðunnar í beinni útsendingu.

Ný bráða­mót­taka að taka á sig mynd

Framkvæmdum við Nýjan Landspítala miðar vel þessa dagana en þó er ekki gert ráð fyrir að hann verði tekinn í gagnið fyrr en árið 2030, eða fjórum árum á eftir áætlun. Á spítalanum verður stærsta bráðamóttaka Norðurlandanna.

Krafa að fá slökkvi­stöð í bæinn

Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030.

„Mikið á­fall að vera allt í einu komin með eld í bak­garðinn“

Gróðureldarnir við Elliðavatn í gær eru meðal þeirra stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Hestamenn í Kópavogi óttuðust um tíma að eldarnir bærust í hesthúsin og segja það áfall að vera með eld í bakgarðinum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn sem gerði rýmingu hesthúsa erfiðari svo og slökkviliðsmönnum að komast á staðinn.

Erfitt að segja til um upp­tök gróðureldanna

Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda.

Sjá meira