Fréttamaður

Kjartan Kjartansson

Kjartan er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög

Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, hefur hafið rannsókn á hvort að X hafi brotið evrópsk persónuverndarlög þegar gervigreindartól miðilsins framleiddi og birti falsaðar kynferðislegar myndir af konum og börnum. 

„Vel skipu­lögð her­ferð“ gegn ETS-losunar­kerfinu

Stóriðjufyrirtæki í Evrópu halda nú uppi harðri gagnrýni á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Sérfræðingur í kolefnismörkuðum telur vel skipulagða herferð í gangi til þess að hafa áhrif á endurskoðun kerfisins sem stendur fyrir dyrum.

Sam­þykktu heimild til að svipta flótta­menn vernd

Stjórnarfrumvarp sem veitir stjórnvöldum heimild til að svipta flóttamenn vernd auk dvalar- og atvinnuleyfi brjóti þeir af sér var samþykkt mótatkvæðalaust á Alþingi í dag. Einnig verður hætt að veita dvalarleyfi þegar mál hælisleitenda dragast á langinn.

Stillir sér upp á miðjunni

Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið.

Gera Wolt-sendla starfs­menn en á ó­hefð­bundnum kjörum

Heimsendingarfyrirtækið Wolt hefur í fyrsta skipti ráðið sendla sem starfsmenn í Finnlandi eftir að dómstóll skikkaði það til þess. Sendlarnir fá þó hvorki greitt á milli sendinga né fyrir að sendast á eigin bílum.

Neita að taka fyrir um­sókn um nýja kyn­slóð flensu­sprautu

Bandaríska lyfjastofnunin hafnaði því að taka fyrir umsókn lyfjafyrirtækisins Moderna um leyfi fyrir nýja tegund flensusprautu. Fyrirtækið segist ætla að hætta fjárfestingu í öðrum lyfjum ef það getur ekki treyst á að koma þeim inn á bandarískan markað.

Greiða at­kvæði um há­marks­fjölda Sviss­lendinga

Svisslendingar greiða atkvæði um það í sumar hvort setja eigi hámark á hversu margir þeir mega vera. Verði tillaga stærsta flokks landsins að veruleika mega landsmenn ekki verða fleiri en tíu milljónir um miðja öldina. Tilgangurinn er að fækka innflytjendum.

Sjá meira