Kviknaði í bíl á miðjum vegi Betur fór en á horfðist þegar kviknaði í bíl Einars Freys Bergssonar á ferðinni í gær. Einar segir að sem betur fer hafi viðbragðsaðilar séð til þess að málið hafi verið fljótlega afgreitt. 25.5.2025 13:52
Úr Kvennaskólanum í píparann Fjölbreyttur hópur nemenda brautskráðist frá Tækniskólanum í gær þegar 521 nemandi útskrifaðist af 34 ólíkum námsbrautum. Hildur Ingvarsdóttir skólameistari fjallaði um gróskumikið starf skólans á liðnu ári í ræðu sinni, og nefndi góðan árangur nemenda skólans á Íslandsmóti iðn- og verkgreina sem fór fram í marsmánuði þar sem skólinn eignaðist 11 Íslandsmeistara. 25.5.2025 11:36
Gunnar Smári féll í stjórnarkjöri: Úrsagnir og uppnám á aðalfundi Sósíalistaflokksins Hópur sem stillti sér upp til höfuðs Gunnari Smára hlaut kjör til framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins á aðalfundi flokksins í dag. Nokkurt uppþot varð á fundinum og hefur hópurinn verið sakaður um smölun og svæsna atlögu að atkvæðafrelsi. Nokkrir meðlimir hafa þegar sagt sig úr flokknum og liggja aðrir undir feldi. 24.5.2025 17:08
Segja Freddie Mercury eiga laundóttur Freddie Mercury átti dóttur í leyni með eiginkonu náins vinar síns fyrir tæplega fimmtíu árum síðan. Þetta er fullyrt í nýrri ævisögu um breska söngvarann sem nýverið leit dagsins ljós. 24.5.2025 15:39
Skotin flakka milli Enoks og Birgittu: „Settu franskarnar í pokann“ Ummæli sem Enok Vatnar Jónsson lét falla um barnsmóður sína og fyrrverandi kærustu Birgittu Líf Björnsdóttur hafa vakið mikla athygli og hneykslan þeirra sem fylgjast vel með gangi mála hjá vinsælustu áhrifavöldum landsins. Enok skrifaði nokkuð kuldalega athugasemd við Tiktok myndband þar sem Birgittu brá fyrir. 24.5.2025 12:52
Þrjár erlendar stúlkur með hæstu einkunn í FÁ Ngan Kieu Tran, Dana Zaher og Diana Al Barouki útskrifuðust úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla í gær og fengu verðlaun fyrir góðan námsárangur. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa flutt til Íslands árið 2022 og hafa tileinkað sér íslenskuna á mettíma. 24.5.2025 11:35
Landsliðshetjur elta drauminn til Ólafsvíkur Knattspyrnukempurnar Helena Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir flytja á næstunni vestur til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Helena segir að þær hafi langað að prófa búa á landsbyggðinni og það sé hollt að prófa eitthvað nýtt áður en maður verður of gamall. 20.5.2025 21:29
Rikki G og Valdís eiga von á barni Fjölmiðlamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason, jafnan þekktur sem Rikki G, og kona hans Valdís Unnarsdóttir eiga von á barni. 20.5.2025 20:01
„Það er bara dýrt að vera fátækur“ Verulegar bikblæðingar hafa verið um land allt í hlýindunum undanfarna daga. Framkvæmdastjóri Colas á Íslandi segir að ástæðuna megi rekja til þess að á Íslandi sé allt bundið slitlag meira og minna lagt með ódýrustu aðferðinni, klæðningu. Sú aðferð henti vel þar sem umferð er lítil en hún dugi ekki lengur til víða um land. 20.5.2025 18:36
Varað við bikblæðingum um land allt Vegagerðin hefur gefið út viðvörun vegna bikblæðingar víða um land og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og draga úr hraða þar sem við á. 18.5.2025 16:26