Hrafni bjargað af þaki Byko Þegar starfsmenn mættu til starfa í morgun, í Kjalarvogi nánar tiltekið, blasti við hrafn hangandi í girni sem fast var við þak Byko. Starfsmenn Húsasmiðjunnar höfðu samband við lögreglu sem sendi slökkviliðið á staðinn. Slökkviliðið virtist vel búið til að sinna verkefnum sem þessum, þeir höfðu snör handtök og björguðu krumma. 22.6.2026 13:14
„Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur segist hafa fengið djúpstæðan áhuga og ástríðu fyrir heilsu og næringu eftir að hafa sjálf misst heilsuna. Elísabet telur blóðgjöf, sem hún þurfti að þiggja, hafa orsakað alvarleg veikindi. 22.6.2026 12:01
Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023. 22.6.2026 11:14
Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Dagný Bjarnadóttir fær misvísandi svör frá mismunandi stjórnsýslueiningum en hún hefur tekið að sér að vinna í málum tengdasonar síns sem upphaflega var sektaður fyrir að vera ekki með íslenskt ökuskírteini. Sú sekt var felld niður en gekk aftur þegar tengdasonurinn, sem er frá Venesúela, var sektaður öðru sinni. Hún stendur frammi fyrir miklum kostnaði. Lögmaðurinn segir um gat að ræða í kerfinu. 20.6.2026 07:02
Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Kurr er í kvikmyndagerðarkonum en þeim þykir heldur karllæg stjórn og formaður sem kosin voru á aðalfundi í gær. Gunnar Sigurðarson, starfsmaður Sambands íslenskra kvimyndaframleiðenda (SÍK) og Samtaka iðnaðarins, segist ekki geta túlkað þetta sem svo að kvikmyndageirinn sendi kaldar kveðjur til kvenna. 19.6.2026 13:28
Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus er furðu lostinn. Hann er mikill fánamaður og hefur unun af fánasafni sínu. Nú hefur einhver nágranni hans sakað Ólaf um að hafa ekki haft sómakennd í sér til að flagga íslenska fánanum á 17. júní. Ólafur er furðu lostinn. 19.6.2026 09:12
„Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri í Reykjanesbæ, fær það óþvegið frá minnihlutanum í bæjarstjórn sem gagnrýnir bæði launakjör hans, sem þau segja ofurlaun, sem og það að hafa ráðið sér aðstoðarmann sem ekki er gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun. Vilhjálmur lætur minnihlutann ekki eiga neitt inni hjá þér og sakar hann um á móti að standa fyrir bulli og upplýsingaóreiðu. 18.6.2026 15:44
Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á Þingvöllum um næstu helgi og bera yfirskriftina Bergmál. Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að stólar, regnhlífar og veitingar yrðu ekki leyfð á svæðinu. Jakob Frímann tónleikahaldari segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu þó ekki sé gert ráð fyrir því að fólk flytji heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér. 16.6.2026 16:33
Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Verkalýðsleiðtoginn Vilhjálmur Birgisson greinir frá því að á næstu dögum muni Krambúðin á Akranesi loka. Þetta var eftir að eigendur tóku þessa erfiðu ákvörðun. 16.6.2026 14:09
„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur þungar áhyggjur af samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Hún spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra út í stöðu mála hvað þau varðar og svörin sem Diljá Mist fékk voru ekki til þess fallin að minnka áhyggjur hennar, síður en svo. 15.6.2026 13:20