Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, fer hörðum orðum um Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra á Facebook og segir hana „eina ráðherra málaflokksins sem vill helst hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“. 8.5.2026 08:41
Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið Evrópusambandinu frest til 4. júlí næstkomandi til að klára afgreiðslu tollasamkomulags ríkjanna. Hótar hann að hækka tolla verulega ef það næst ekki. 8.5.2026 07:36
Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Donald Trump Bandaríkjaforseti segir vopnahlé enn í gildi milli Bandaríkjanna og Íran, þrátt fyrir að komið hafi til átaka á Hormuz-sundi í gær. 8.5.2026 06:55
Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af einstakling í félagslegu búsetuúrræði í gærkvöldi, eftir að ítrekaðar tilkynningar höfðu borist yfir daginn um að viðkomandi væri öskrandi, ógnandi og til ama. 8.5.2026 06:20
Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Íranir hafa valdið mun meiri skaða á innviðum Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum en Bandaríkjastjórn hefur viljað kannast við. Þetta eru niðurstöður Washington Post, sem byggja á rannsóknum á gervihnattamyndum. 7.5.2026 07:30
Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa gefið út nýja áætlun gegn hryðjuverkastarfsemi, þar sem glæpasamtök sem hagnast á fíkniefnum eru í forgrunni. Spjótum er hins vegar einnig beint gegn „ofbeldisfullum öfga-vinstrimönnum“ og opnum landamærum Evrópu. 7.5.2026 06:53
Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af rekstri snyrtistofu á vaktinni í gærkvöldi eða nótt, þar sem starfsemin virtist ekki uppfylla skilyrði. Málið virðist tengjast öðru máli sem kom upp, þar sem maður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna, peningaþvætti og fleira. 7.5.2026 06:26
Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur til breytingar á tillögu utanríkisráðherra að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið og að svarmöguleikarnir verði einfalt „Já“ eða „Nei“. 6.5.2026 08:47
Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Fjórar konur og níu börn þeirra, sem dvalið hafa í búðum fyrir fjölskyldur erlendra meðlima Íslamska ríkisins í um sjö ár, eru á leið til Ástralíu. Til stendur að handtaka einhverjar kvennanna þegar þær koma aftur til landsins en þaðan ferðuðust þær á árum áður til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og giftast vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. 6.5.2026 08:08
Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Alls fæddust 4.387 börn lifandi árið 2025, örlítið fleiri en fæddust árið 2024, þegar 4.311 börn fæddust lifandi. Um var að ræða 2.292 drengi og 2.095 stúlkur, en það jafngildir því að 1.094 drengir fæðist á móti hverjum 1.000 stúlkum. 6.5.2026 07:37