Nýtt tónlistarmyndband frá Ásgeiri Trausta Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Ásgeirs Trausta við lagið Borderland. Myndbandinu var leikstýrt af Einari Egilssyni en lagið er hluti af væntanlegri plötu sem kemur út í lok október og ber nafnið Time on my hands. 4.10.2022 11:30
KÚNST: Ákvað að verða myndlistarmaður þegar hann var tíu ára Sigurður Sævar Magnúsarson er listamaður sem segir listina hafa fylgt sér nánast allt sitt líf. Hann festi nýverið kaup á gamla Argentínuhúsinu á Barónsstíg þar sem hann hyggst setja upp ýmsa menningar- og listviðburði á næstu árum. Sigurður Sævar er viðmælandi vikunnar í nýjasta þætti af KÚNST. 4.10.2022 06:31
„Meira shit“ frá Issa Tónlistarmaðurinn Issi tók lagið sitt Meira Shit í beinni útsendingu í seríu frá útvarpi 101 og Stúdíó Sýrlandi sem ber nafnið 101 sessions. 3.10.2022 16:31
„Goðsagnakennd djammkvöld“ „Mánudagsklúbburinn á Prikinu hefur fengið endurvakningu lífdaga. Goðsagnakennd djammkvöld hér á árum áður,“ segir Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, eigandi Priksins. Mánudagsklúbburinn var gríðarlega vinsæll fyrir um áratugi síðan og er nú leiddur af þremur ungum konum, þeim Valgerði, Heiðbrá og Nadiu, sem sérhæfa sig í skvísutónum og góðri stemningu. 3.10.2022 14:31
Persónuleg heimildarmynd um einstakt ferðalag til Nepal Listamaðurinn Brandur Bryndísarson Karlsson deilir ævintýralegu ferðalagi sínu til Nepal í nýfrumsýndri heimildarmynd sem ber nafnið Atomy og er eftir Loga Hilmarsson. Myndin segir frá einstöku ferðalagi Brands þegar hann fór að hitta meistara austrænna lækningafræða, Rahuk Bharti, og var frumsýnd á RIFF í gærkvöldi. 3.10.2022 13:31
Ágætis staðfesting að fá hrós frá Virgil Abloh Bergur Guðnason er þrítugur fatahönnuður sem hefur komið víða að í heimi tískunnar. Bergur útskrifaðist úr LHÍ árið 2017, bjó um stund í París þar sem hann starfaði fyrir tískuhús á borð við Haider Ackermann og Acne Studios og hannaði þar flíkur fyrir tískupalla sem fóru í sölu síðar meir. Hann starfar nú hjá 66 norður og er meðal annars að hanna sérstakar línur fyrir væntanlega verslun fyrirtækisins í Bretlandi. Bergur Guðna er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 2.10.2022 07:00
Ábreiða Bríetar af lagi Ásgeirs Trausta slær í gegn Bríet skipar sjöunda sæti íslenska listans þessa vikuna með einstaka ábreiðu sína af laginu Dýrð í Dauðaþögn sem Ásgeir Trausti gaf út fyrir tíu árum síðan af samnefndri plötu. 1.10.2022 16:01
Úkraínskir listamenn sýna í Hörpu Harpan iðar af menningu og lífi að vanda en samtökin Artists4Ukraine standa fyrir fjölbreyttri listasýningu þar um þessar mundir. Samtökin hafa á undanförnum mánuðum staðið fyrir ýmsum listviðburðum þar sem allur ágóði rennur óspart til góðgerðasamtaka í Úkraínu. Næstkomandi mánudag verður stór söfnunarviðburður á þeirra vegum í Kaldalóni. 1.10.2022 14:00
Hefur unnið sem fyrirsæta um allan heim Kristín Lilja Sigurðardóttir hefur ferðast um allan heim í starfi sínu sem fyrirsæta og gengið á tískupöllum fyrir risa á borð við Dior og Kenzo ásamt því að hafa setið fyrir í herferðum fyrir stórfyrirtæki á borð við Zöru og Bottega Veneta. Kristín Lilja er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 1.10.2022 11:31
„Hafnfirskar stelpur rokka“ Hafnfirskar stelpur rokka! er tónlistar vinnusmiðja sem unnin er í tengslum við Appolo listahátíð í Hafnarfirði. Ungar sís og trans stelpur, trans strákar, kynsegin og intersex ungmenni á aldrinum 13-25 ára eru öll velkomin og á vinnusmiðjan sér stað yfir tvær helgar í október. 27.9.2022 17:30