Af og frá að viðræður séu hafnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir af og frá að viðræðurnar við Evrópusambandið séu hafnar. Hún telur rétt að koma þessu skýrt á framfæri við þjóð sína í ljósi umræðu undanfarna daga. 24.3.2026 13:04
Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs hefur verið aukinn eftir hópárás sem átti sér stað í kjallaranum aðfaranótt 17. mars. 24.3.2026 11:24
Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. 23.3.2026 13:07
Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Greiningardeild ríkislögreglustjóra undirbýr nú mat á því hvort erlend ríki eða aðrir hagsmunaaðilar kunni að reyna að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið. 21.3.2026 14:47
Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Skekkja í íslenskum skaðabótalögum hækkar iðgjöld viðskiptavina tryggingafélaga og kostar samfélagið milljarða króna á ári. VÍS kallar nú eftir endurskoðun laganna, einfaldara matsferli og miðlægu kerfi í bótamálum vegna líkamstjóna, einkum í umferðarslysum. 20.3.2026 22:22
Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Ný lög um skammtímaleigu heimila fólki að leigja út eigið lögheimili, sumarbústaði og húsnæði í dreifbýli. Á sama tíma er skammtímaleiga annarra eigna í þéttbýli hert, með það að markmiði að auka framboð á húsnæði. 20.3.2026 14:03
Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Bílastæðum við nýbyggingar í Reykjavík mun fjölga verði tillaga sem liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar samþykkt. Tillagan snýr að því að rýmka viðmið fyrir íbúðahúsnæði um allt að 0,5 bílastæði á íbúð og var til umræðu á fundi ráðsins í gær. 19.3.2026 16:37
„Nú hafi orðið bakslag“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það vond tíðindi að Seðlabankinn hafi séð sig knúinn til að hækka stýrivexti á ný, þótt þeir séu enn talsvert lægri en haustið 2024. Hún segir ljóst að verðbólguvæntingar þurfi að slá niður og að ríkisstjórnin muni ekki hvika frá áætlun um að reka ríkissjóð réttum megin við núllið. 18.3.2026 15:50
Útilokar oddvitaframboð í borginni Heimir Már Pétursson útilokar að hann muni bjóða sig fram sem oddviti borgarstjórnarflokks Flokks fólksins. Sögusagnir þess efnis hafa borist á milli manna og náði sú saga kannski hæst í nýjasta hlaðvarpsþætti Komið gott sem kom út í vikunni. 18.3.2026 13:43
Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Stéttarfélagið VR hefur hafið undirbúning fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Halla Gunnarsdóttir formaður VR greinir frá þessu á Facebook en hún telur að allar líkur séu á að forsendur kjarasamninga bresti í haust. 18.3.2026 13:23