Landris mælist áfram í Svartsengi Landris mælist áfram í Svartsengi og miðað við hraða kvikusöfnunar síðustu vikur fara líkur á nýju eldgosi að aukast þegar líða fer á haustið. Jarðskjálftavirkni við kvikuganginn fer áfram dvínandi og mun uppfært hættumat að óbreyttu gilda til 18. júní. 3.6.2025 14:16
Forsætisráðherra Hollands segir af sér Dick Schoof, forsætisráðherra Hollands, hefur tilkynnt um afsögn sína úr embætti. Tilkynningin kemur fáeinum klukkustundum eftir að Geert Wilders tilkynnti að hægriöfgaflokkurinn PVV hefði ákveðið að segja skilið við ríkisstjórnina í kjölfar deilna um innflytjendamál. 3.6.2025 14:10
Nóttin róleg hjá björgunarsveitum Nóttin hefur verið róleg hjá björgunarsveitum þó björgunarsveitir hafi tvisvar verið kallaðar út á Tröllaskaga til að aðstoða bændur með sauðfé. 3.6.2025 07:55
Selfosskirkjugarður að fyllast Fimm til sex ár eru í að Selfosskirkjugarður verði fullnýttur og hefur Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra Árborgar, verið falið að funda með sóknarnefnd Selfosskirkju um mögulega framtíðarstaðsetningu nýs kirkjugarðs. 2.6.2025 14:48
134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alls var 134 manns sagt upp í þremur hópuppsögnum í nýliðnum maímánuði. 2.6.2025 13:33
Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ingvi Steinn Ólafsson hefur gengið til liðs við netöryggisfyrirtækið Defend Iceland sem yfirmaður vöruþróunar. 2.6.2025 13:20
Vill sjá upplýsingaspjald um kjörna fulltrúa í ráðhúsinu Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hefur lagt til að komið verði upp upplýsingaspjaldi í Ráðhúsi Reykjavíkur um þá fulltrúa sem kjörnir hafa verið í borgarstjórn. Markmiðið með slíku væri að auka sýnileika og vitund almennings um kjörna fulltrúa, sem og að efla tengsl borgarbúa við lýðræðislega stjórnsýslu borgarinnar. 2.6.2025 08:51
Lægð nálgast sem dýpkar ört Lægð er nú sunnan við landið sem dýpkar ört og fer til austurs. Spár gera ráð fyrir að lægðarmiðjan verði nærri Færeyjum fyrir hádegi á morgun og þrýstingur í miðjunni þá 966 millibör sem er óvenjulega lág tala á þessum árstíma. 2.6.2025 07:12
Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Bretinn Sam Gardiner, sem þekktur er fyrir að hafa verið meðal keppanda í raunveruleikaþáttunum Race Across the World, er látinn eftir bílveltu á hraðbraut nærri Manchester í Englandi. Hann varð 24 ára gamall. 1.6.2025 17:50
Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Lava Show hlaut á dögunum Viator Experience verðlaunin 2025 en Viator er heimsins stærsta markaðstorg á sviði ferðaþjónustu. 31.5.2025 10:02