Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Gary Glitter á­kærður fyrir kyn­ferðis­brot eina ferðina enn

Gary Glitter, fyrrverandi poppstjarna og dæmdur barnaníðingur, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Meintu brotin ná aftur til ársins 1978. Glitter var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2015 fyrir að brjóta á stúlkum, átta til þrettán ára.

Fríverslunar­samningur EFTA og Víet­nam í höfn

Viðræðum EFTA ríkjanna um gerð fríverslunarsamnings við Víetnam er lokið. Samkomulag náðist milli ríkjanna á nýafstöðnum ráðherrafundi EFTA sem fór fram þann 22. júní síðastliðinn í Reykjavík. 

Vasaþjófar sem herja á ferða­menn engir amatörar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir tilkynningum um vasaþjófnað hafa fjölgað síðastliðna daga og vikur og segir þjófnaðinn vera „þaulskipulögð brotastarfsemi“ brotahópa sem koma til landsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur gripið til aukinna aðgerða vegna viðvarandi vasaþjófa á helstu ferðamannastöðum. Meðal annars sinni ómerktir lögreglumenn eftirliti. 

Drangar kaupa Brauð & Co

Drangar hafa gengið frá kaupum á Brauð & Co, einni þekktustu bakarískeðju landsins.

Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu

Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í  Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 

Mango opnar í Kringlunni

Verslun spænska tískuvörumerkisins Mango var opnuð á laugardaginn í Kringlunni. 

Mót­mælendur í Suður-Afríku krefjast brott­flutnings inn­flytj­enda

Mótmæli voru haldin í Suður-Afríku í gær víðs vegar um landið. Mótmælendur krefjast þess að óskráðir innflytjendur séu látnir yfirgefa landið en mótmælendahópar settu fram óformlegan „frest“ fyrir óskráða innflytjendur til þess að yfirgefa landið í síðasta mánuði. „Herferð“ þeirra gegn innflytjendum í landinu hefur leitt til þess að tugþúsundir hafa flúið öryggis síns vegna.

Sjá meira