Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Heimili rýmd nærri herflugstöð

Heimili nærri herflugstöð í Gloucester-skíri á Englandi voru rýmd í morgun að sögn lögreglu þar í landi. Nokkrir voru handteknir grunaðir um brot á lögum er varða sprengiefni nærri stöðinni en bandaríski flugherinn hefur þar aðsetur.

Á­fram spáð tals­verðri úr­komu norðvestan­lands

Búast má við talsverðri úrkomu á norðvesturhluta landsins, rigningu á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomulítið verður annars staðar á landinu, þó má búast við vætu á köflum suðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu þrjú til ellefu stig, svalast á Vestfjörðum.

Skemmti­stað lokað í mið­borginni vegna fjölda ung­menna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að afskipti voru höfð af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum, segir í dagbók lögreglu. Að auki voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa, hvor vegna sinnar líkamsárásarinnar, annar í miðborg Reykjavíkur og hinn í hverfi 221 í Hafnarfirði.

Þyrlan lenti við Hörpu

Landhelgisgæslan hélt upp á aldarafmæli sitt í dag með pomp og prakt. Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins.

Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi

Sex eru látnir eftir að íbúðarbygging hrundi í kjölfar sprengingar í gær í Plaka-hverfinu í Aþenu á Grikklandi. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni.

Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF

Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson fékk óvænt heiðursverðlaun RIFF í gær fyrir æviframlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Verðlaunin voru veitt á sérstakri tvöfaldri sýningu samstarfsverka Sigurjóns og leikstjórans heitins Davids Lynch.

Á­tján kíló af kókaíni undir fölskum botni

Par var dæmt í átta ára fangelsi fyrir að hafa staðið að innflutningi á rúmum átján kílóum af kókaíni til landsins í maí síðastliðnum. Fíkniefnin voru flutt til landsins frá Frankfurt í Þýskalandi í tveimur farangurstöskum sínum. Annað þeirra sagist hafa keypt töskurnar notaðar og að þau hafi ekkert vitað um efnin í þeim.

Enn hætta á skriðum

Enn er hætta á skriðum og grjóthruni á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum og nokkuð hefur verið um grjót sem hefur fallið á vegi.  Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðan á fimmtudag og spáð er áframhaldandi úrkomu fram á mánudag. 

Loka hring­veginum við Jökuls­ár­lón

Hringveginum verður lokað við Jökulsárlón vegna malbikunarframkvæmda á svæðinu. Lokað verður frá klukkan 20:00 annað kvöld, sunnudaginn 27. september, til klukkan 07:00 mánudagsmorguns, 28. september.

Sjá meira