Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Meiri líkur en minni á að kjara­samningum verði sagt upp

Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess.

Portúgalsfarinn á bak við lás og slá

Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október. Hann er nú sá eini sem er í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti en alls voru sautján handteknir vegna málsins. 

Rúm­lega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir á­hrifum

Karlmaður var í dag dæmdur í nítján mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Þar að auki var ævilöng svipting hans á ökuréttindum áréttuð en áður hefur maðurinn gerst sekur um akstur sviptur ökuréttindum sex sinnum.

Úr­skurðaður í fjögurra vikna gæslu­varð­hald

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag vegna rannsóknar lögreglu á alvarlegri líkamsárás. Maðurinn er grunaður um að hafa veitt konu á fertugsaldri alvarlega áverka í fjölbýlishúsi í Kópavogi. 

Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins

Lögmannafélag Íslands tekur undir niðurstöður EFTA-dómstólsins um að ákvæði EES-samningsins girði fyrir skyldu lögmanna til að veita skattyfirvöldum upplýsingar um skjólstæðing sinn ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn krefur. Þetta segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Kristín og Kol­beinn eiga von á janúarbarni

Kristín Ólafsdóttir, fyrrverandi fréttakona og núverandi aðstoðarkona forsætisráðherra, og Kolbeinn Arnarson, meistaranemi í verkefnastjórnun í Háskólanum í Reykjavík, eiga von á sínu fyrsta barni.

Sjálf­stæðis­flokkurinn tapar fylgi

Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og bætir við sig fylgi um rúmt prósentustig í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi um tæp tvö prósentustig og Flokkur fólksins mælist enn utan þings. 

Gular við­varanir í nótt vegna rigningar

Gular veðurviðvaranir taka gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu klukkan tvö í nótt vegna mikillar úrkomu. Viðvaranirnar verða í gildi til klukkan þrjú síðdegis á morgun, miðvikudaginn 30. september.

Vinnu­vél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú

Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang.

Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum

Raunveruleikaþáttastjarnan Dani Bowman er stödd á Íslandi ásamt kærasta sínum Henry Andrade. Bowman gerði garðinn frægan sem þátttakandi í þáttunum Love on the Spectrum þar sem fólk á einhverfurófinu leitar að ástinni.

Sjá meira