Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Ear­hart

Hópur vísindamanna er nú á leið til Nikumaroro-eyju á Kyrrahafi í þeirri von um að leysa ráðgátuna um Ameliu Earhart. Earhart hvarf sporlaust þegar hún gerði tilraun til þess að verða fyrst allra að fljúga umhverfis jörðina árið 1937.

Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“

Fjöldi fólks kom saman til að mótmæla sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði í dag, bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík en mótmælin fóru fram samtímis. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stóð fyrir mótmælunum. 

Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ

Samfylkingin og Framsókn hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sprakk á sunnudaginn síðastliðinn eftir fjögurra mánaða samstarf. 

„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni.

Brotist inn í tvö fyrir­tæki

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um innbrot á svipuðu svæði miðsvæðis í Reykjavík í dag. Málin eru bæði í rannsókn.

Fær auka­dag til stjórnar­myndunar

Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð, fær einn aukadag til stjórnarmyndunarviðræðna en hún átti upphaflega að skila skýrslu til forseta þingsins á morgun.

Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl

Tólf eru látin eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, og á fjórða hundrað særðust. Öllu flugi hefur verið beint annað og starfsemi vallarins tímabundið lögð niður. Hútar eru sagði ábyrgir fyrir árásinni.

Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið

Christa Pike, sem dæmd var til dauðarefsingar árið 1996, hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi í kjölfar misheppnaðrar aftöku sinnar í síðustu viku og send aftur í fangelsið sem hún hefur dvalið í síðastliðin 30 ár.

Sjá meira