Bæjarar gengu frá Atalanta Bayern Munchen gjörsamlega valtaði yfir ítalska liðið Atalanta á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ítalska liðið þarf kraftaverk og meira til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum í seinni leik liðanna eftir viku. Lokatölur 6-1 sigur Bayern Munchen. 10.3.2026 21:57
Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Íslendingalið Melsungen tapaði með níu mörkum,34-25, gegn Vardar í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld og þarf því að fara í umspil um sæti í átta liða úrslitum. Á sama tíma hafði Kristianstad betur gegn Benfica í Íslendingaslag. 10.3.2026 21:25
Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Tottenham er í martraðarlandi gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem nú stendur yfir. Rikki G, sem lýsir leik liðanna á Sýn Sport 2, gagnrýndi meðferð Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham, á einum leikmanni liðsins harðlega í beinni útsendingu. 10.3.2026 21:12
Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Viggó Kristjánsson, er orðaður við þýska stórliðið Flensburg og er góður gangur sagður í viðræðum milli hans og félagsins. 10.3.2026 19:54
Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Kristján Örn Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir SAH í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld þegar að liðið glutraði niður góðri stöðu gegn Porto og mátti sætta sig við tap sem sér til þess að liðið missir af beinu sæti í átta liða úrslit keppninnar. Lokatölur 29-30, eins marks sigur Porto. 10.3.2026 19:30
Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Atli Sigurjónsson skoraði öll fimm mörk Þórs Akureyri sem fór illa með Val þegar að liðin mættust í Boganum á Akureyri í Lengjubikar karla í fótbolta í kvöld. Lokatölur 5-1 sigur Þórs Akureyri. 10.3.2026 18:59
Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Þeir Kristján Einar Kristjánsson og Bragi Þórðarson, Formúlu 1 lýsendur og umsjónarmenn hlaðvarpsins Pitturinn, veltu því fyrir sér hvort að með annari keppnisáætlun hefði Ferrari geta unnið fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu. 10.3.2026 18:31
Sögulegt kvöld í vændum hjá Salah? Með því að byrja leik Liverpool gegn Galatasaray í Meistaradeild Evrópu nú fyrir skemmstu varð Mohamed Salah leikjahæsti leikmaður Liverpool í sögu aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu með áttatíu og einn spilaðan leik í keppninni fyrir félagið. Salah gæti bætt við öðrum merkum áfanga í kvöld. 10.3.2026 17:45
Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ UFC bardagakappinn Gunnar Nelson, sem jafnframt er þjálfari í blönduðum bardagaíþróttum hjá Mjölni, kallar eftir því að komið verði á almennilegu regluverki í kringum íþróttina hér á landi. Það sé hálf galið að slíkt hafi ekki verið gert nú þegar að íþróttin sé í mikilli sókn og bardagakvöld á heimsmælikvarða verið haldið í Reykjavík. 10.3.2026 08:01
Emin enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli Íslenski atvinnumaðurinn í hnefaleikum, Emin Kadri Eminsson, er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli eftir sigur gegn Lettanum Aigars Zenuks á laugardaginn síðastliðinn. 9.3.2026 16:15