Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðin forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Hún mun taka við starfinu í vor af Rannveigu Rist, sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1997. Hún mun einnig taka sæti Rannveigar í framkvæmdastjórn Aluminium Atlantic deildarinnar innan Rio Tinto. 27.1.2026 14:15
„Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, gefur ekkert upp um það hvernig hún greiddi atkvæði í nýafstöðnu prófkjöri flokksins í Reykjavík. Hún segir þátttökuna í prófkjörinu vera glæsilega fyrir flokkinn en ríflega fimm þúsund flokksfélagar tóku þátt í því, margir hverjir spánnýir í flokknum. Þá vill Kristrún ekki tjá sig sérstaklega um orð borgarstjóra um að flokksfélagar hafi hafnað reyndri konu. 27.1.2026 11:26
Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Tilnefningarnefnd Íslandsbanka hefur auglýst eftir frambjóðendum til stjórnar bankans, aðeins einni viku eftir að ný stjórn bankans var kjörin á hluthafafundi. Ný stjórn verður kjörin á aðalfundi bankans þann 19. mars, sléttum tveimur mánuðum eftir að núverandi stjórn var kjörin. 26.1.2026 16:34
Sigurður Helgi kjörinn varaforseti Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, hefur verið kjörinn varaforseti Evrópuráðsþingsins. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá að takast á við þetta verkefni. Ég geri það með auðmýkt og virðingu fyrir þessari merku stofnun,“ segir hann. 26.1.2026 14:49
Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Þau Eivydas Laskauskas, Kamile Radzeviciute og Egidijus Dambraukskas, sem öll eru frá Litáen, hafa þriggja ára og sex mánaða fangelsisdóma fyrir innflutning á miklu magni kókaíns, sem komið hafði verið fyrir inni í BMW-bíl. 26.1.2026 13:39
Halda til loðnuveiða í kvöld Reiknað er með því að tvö skip haldi til loðnuveiða frá Neskaupstað í kvöld, Barði NK frá Síldarvinnslunni og grænlenska skipið Polar Amaroq. Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag. 26.1.2026 12:14
Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Félagið Eyjagöng ehf., sem undirbýr gerð jarðganga á milli lands og Eyja, hefur tryggt sér stóran hluta af 200 milljóna króna fjármögnunarmarkmiði sínu. Meðal þeirra sem þegar hafa greitt fyrir hlutafé eru Íslandsbanki, Ísfélagið og Vinnslustöðin. 26.1.2026 11:35
Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Samhliða umfangsmiklum veituframkvæmdum í Lönguhlíð í Reykjavík fær gatan nýtt útlit. Miðeyjan hverfur og sérstakir hjólastígar verða beggja vegna götunnar. Gangstéttir verða næst lóðamörkum en hjólastígarnir verða einstefnustígar upp við gangstéttarnar. Heildarkostnaður framkvæmdanna nemur ríflega milljarði króna. 23.1.2026 15:12
Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum áætla að eftir verðskrárbreytingar og lagningu nýrra rafstrengja myndi kosta allt að hálfum milljarði króna meira á ári að keyra vinnslu félagsins á rafmagni frekar en olíu. 23.1.2026 14:26
Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Frá því að ungliðahreyfing Samfylkingarinnar í Reykjavík hóf formlegan undirbúning fyrir prófkjör flokksins á morgun, um miðjan nóvember síðastliðinn, hefur skráðum félögum flokksins í Reykjavík fjölgað um 72 prósent. 23.1.2026 12:57