Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Áhrifavaldurinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Sigurður Gísli Bond og hársnyrtirinn Birta Huld Hauksdóttir eru trúlofuð. 17.10.2026 23:55
Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Eitt barn og einn fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll í Wichita í Kansasríki í Bandaríkjunum. Fjöldi særðist. 17.10.2026 22:55
Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Ísraelskir landtökumenn réðust í dag á hóp evrópskra erindreka á Vesturbakkanum í Palestínu. Belgísk stjórnvöld og Ísraelsher fordæma árásina en ísraelska forsætisráðuneytið dregur frásögnina í efa. 17.10.2026 22:25
Biður Jón afsökunar Grímur Grímsson, þingmaður VIðreisnar, biður kollega sinn Jón Gnarr afsökunar á „klaufalegum“ svörum sínum í útvarpsþætti í morgun þar sem hann sagði þingnefnd sem Jón færi fyrir ekki hafa fundað mikið að undanförnu. Nefndin hætti störfum í júní. 17.10.2026 22:04
Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Hinn 26 ára Ari Orrason var í dag kjörinn nýr formaður Ungra vinstri grænna á landsfundi ungliðahreyfingarinnar sem var haldin á Center Hotel Plaza í miðborginni. 17.10.2026 19:43
Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Danska lögreglan handtók í dag átta manns í tengslum við mótmæli víða um Kaupmannahöfn. Annars vegar hélt hægrisinnaða grasrótarhreyfingin „Danska þjóðin“ mótmæli þar sem farið var fram á fjöldabrottvísanir. Hins vegar héldu samtökin Mino Danmark, baráttusamtök fyrir innflytjendur, auk fleiri samtaka gagnmótmæli undir yfirskriftinni „Nei við endurflutningum - mótmæli gegn rasisma“. Stimpingar urðu milli fylkinga að mótmælunum loknum. 17.10.2026 19:19
Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa. 17.10.2026 17:40
Vilja auka viðveru NATO í norðri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Anitu Anad, utanríkisráðherra Kanada. Ráðherrarnir vilja uppfæra fríverslunarsamning landanna og koma á fót tengslaneti fyrir jarðhita til að greina tækifæri til samstarfs. Þá vilja þær styrkja viðveru NATO á norðurslóðum. 8.10.2026 22:11
Máttu tæma lónið Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms sem taldi að Orkuveita Reykjavíkur hefði verið í rétti þegar hún lét tæma Árbæjarlón til frambúðar. Rétturinn viðurkenndi þó að íbúi hefði haft lögvarða hagsmuni af tæmingunni enda byggi hann við nyrðri hluta lónsins og ásýnd svæðisins breyttist mikið. 8.10.2026 21:10
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Ræðukeppni Menntaskólans í Reykjavík og Verslunarskóla Íslands hefur verið frestað fram til sunnudags eftir að knattspyrnuleikur milli skólanna fór úr böndunum í gærkvöldi. Í pósti til nemenda og forráðamanna segir hún atburðina vera með öllu óásættanlega og varpa skugga á gervallt skólasamfélagið. Nemendafélögin segjast munu draga lærdóm af atvikinu. 8.10.2026 19:45