Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu í Reykholti í Biskupstungum í apríl í fyrra er lokið. Það kemur í hlut héraðssaksóknara að gefa út ákæru í málinu. 11.4.2025 07:02
Sauð á starfsmanni sem löðrungaði íbúa á hjúkrunarheimili Starfsmaður á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða íbúa á heimilinu 450 þúsund krónur í bætur. Starfsmaðurinn, kona á sjötugsaldri, sló íbúann, konu á ónefndum aldri, með lófa sínum þegar hún ók honum í hjólastól. 10.4.2025 16:54
Birtir niðrandi ummæli sem lýsi hatri í garð trans fólks Arna Magnea Danks, leikkona og grunnskólakennari, segist ekki hafa sakað neinn starfsmanna hjá hlaðvarpsveitunni Brotkastinu persónulega um líflát. Hún hafi verið að vísa til afmennsku sem eigi sér stað í hennar garð og annars trans fólks, meðal annars í þáttum Brotkastins en líka víðar, í athugasemdakerfinu á Facebook. 10.4.2025 14:21
Penninn leggst í miklar breytingar Kaffihúsi Pennans/Eymundsson á Skólavörðustíg hefur verið lokað, stokkað verður upp í fyrirkomulaginu í Austurstræti og 350 fermetra verslun opnuð á Selfossi með innanstokksmunum úr verslun á Laugavegi, sem verður lokað. Forstjóri Pennans segir fyrirtækið í sóknarhug. 10.4.2025 10:59
Draumur breska þríeykisins rætist á Húsavík Breska hljómsveitin Remember Monday, sem keppir fyrir hönd Bretlands í Eurovision 2025, kemur til Húsavíkur á föstudag til að taka upp sína eigin útgáfu af laginu Húsavík (My Hometown). 9.4.2025 15:35
Hinir grunuðu lausir úr einangrun Þrír karlmenn sem grunaðir eru um frelsissviptingu, fjárkúgun og manndráp í máli karlmanns sem fannst illa úti leikinn í Gufunesi fyrir fjórum vikur losna úr einangrun í dag. Þeir sitja eftir sem áður í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikurnar. 9.4.2025 15:04
Pitsurnar til styrktar minningarsjóðnum rjúka út Minningarsjóður Bryndísar Klöru Birgisdóttur styrktist um átta milljónir króna í gær þegar góðgerðarpitsa Domino's seldist upp. Aldrei hefur góðgerðarpitsan selst jafn fljótt upp. Með fram pitsusölu eru bleikar svuntur með nafni og merki minningarsjóðsins til sölu í Kringlunni. 9.4.2025 14:41
Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að tjá sig frekar um „tengdamömmumálið“. Ólöf Björnsdóttir, fyrrverandi tengdamamma barnsföður fyrrverandi barnamálaráðherra, hefur krafist afsökunarbeiðni frá Kristrúnu vegna meints trúnaðarbrests forsætisráðuneytisins. Ráðuneytið hefur ítrekað hafnað ásökuninni um trúnaðarbrest. 8.4.2025 11:48
Trump hótar Kínverjum 50 prósenta viðbótartolli Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hótað því að leggja 50 prósenta viðbótartoll á innflutning frá Kína, nema kínversk stjórnvöld dragi til baka mótaðgerðir sem þau kynntu í síðustu viku. 7.4.2025 16:25
Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Mótmælendur sem stefndu íslenska ríkinu vegna valdbeitingar á mótmælum við Skuggasund í Reykjavík í fyrra hafa áfrýjað sýknudómi í héraði til Landsréttar. Þá hafa þau stofnað félag í kringum málið með þann tilgang að berjast fyrir réttinum til að mótmæla friðsamlega. 7.4.2025 14:29