Sláturhús gíslanna fundið Íraskir hermenn hafa fundið "sláturhús gísla", hús þar sem hryðjuverkamenn héldu gíslum föngnum og myrtu þá, sagði Abdul Qader Mohan, hershöfðingi og yfirmaður írösku hersveitanna í Falluja. Hann sagði að húsin væru í norðurhluta borgarinnar þar sem búist hefði verið við mestri mótspyrnu. Erlent 10. nóvember 2004 00:01
Hörmungarástand í Falluja Sjö menn féllu fyrir stundu í sprengingu í Bagdad í Írak. Hernaðurinn í Falluja, skammt frá höfuðborginni, hefur leitt til öngþveitis og hörmungarástands að sögn hjálparstarfsmanna í Írak. Óttast er að mikið mannfall hafi orðið í stórsókn þúsunda bandarískra hermanna og írakskra þjóðvarðsliða gegn uppreisnarmönnum súnníta í borginni. Erlent 10. nóvember 2004 00:01
Komnir inn í miðborgina Fjörutíu og fimm írakskir löggæslumenn féllu í árásum skæruliða skammt frá Bagdad í morgun. Harðir bardagar geisa í Fallujah og hafa bandarískar hersveitir komið sér fyrir í hjarta borgarinnar. Erlent 9. nóvember 2004 00:01
Barist hús úr húsi Harðir bardagar geisuðu í Falluja annan daginn í röð. Herferðin gegn vígamönnum þar hefur valdið úrsögnum úr írösku bráðabirgðastjórninni. Tugþúsundir óbreyttra borgara eru enn í borginni og halda sig innandyra. </font /></b /> Erlent 9. nóvember 2004 00:01
Sókn hernámsliðsins heldur áfram Harðir bardagar geisa nú í borginni Fallujah í Írak. Hátt í fimmtán þúsund hermenn Bandaríkjamanna og Íraka héldu í nótt áfram sókn sinni inn í borgina og mæta þar harðri andstöðu. Árásinni er beint gegn uppreisnarmönnum úr röðum súnníta en talið er að nokkur þúsund þeirra séu í Fallujah. Erlent 9. nóvember 2004 00:01
Stórárás hafin á Fallujah Bandaríkjamenn og íraskir þjóðvarðliðar hafa hafið stórárás á borgina Fallujah og þar geisa nú harðir bardagar. Flestir borgarbúa eru flúnir. Talið er að um þrjátíu þúsund hermenn taki þátt í árásinni. Erlent 8. nóvember 2004 00:01
Sprengjum rigndi yfir Falluja Bandarískir og íraskir hermenn brutu sér leið inn í Falluja í gær þegar þeir hófu stórsókn gegn vígamönnum í borginni. Harðir bardagar geisuðu fram eftir degi. Tugir vígamanna og nokkur fjöldi íbúa lést </font /></b /> Erlent 8. nóvember 2004 00:01
Leyniskyttur skutu verktaka Leyniskyttur skutu til bana fjóra írakska verktaka sem voru á leið frá bandarískri herstöð í morgun. Átök í Írak hafa farið harðnandi undanfarið en bandarískir hermenn hafa ráðist til atlögu á borgina Fallujah. Uppreisnarmenn hafa haft aðsetur í borginni. Erlent 8. nóvember 2004 00:01
Sprengjur dynja á Fallujah Harðir bardagar geisa í Fallujah í Írak eftir að forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar heimilaði bandarískum hersveitum að gera árás á uppreisnarmenn úr röðum súnníta. Sprengjuárásir dynja á borginni og hafa fjölmargir uppreisnarmenn fallið. Erlent 8. nóvember 2004 00:01
Harðir bardagar í Fallujah Bandarískir skriðdrekar og fótgönguliðar hafa ráðist á járnbrautarstöð rétt innan borgarmarka Fallujah og láta skothríðina dynja á uppreisnarmönnum sem þar halda til. Árásarþyrlur og orrustuþotur sveima yfir borginni, reiðubúnar að leggja til atlögu þar sem mótstaðan verður mest. Erlent 8. nóvember 2004 00:01
Neyðarástandi lýst yfir Bráðabirgðastjórnin í Írak lýsti í gær yfir 60 daga neyðarástandi í landinu. Í gærkvöld var ekki ljóst hvað þessi yfirlýsing þýddi í raun, en talið er líklegt að sett verði útgöngubann og enn meiri áhersla lögð á öryggisgæslu. Erlent 7. nóvember 2004 00:01
Vonast eftir friðsamlegri lausn Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, segist vona að friðsamleg lausn finnist áður en til þess komi að hernámsliðið í landinu ráðist inn í Falluja eins og hefur verið í bígerð. Borgin er á valdi skæruliða og hafa Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra hug á að breyta þeirri skipan mála. Erlent 7. nóvember 2004 00:01
21 lögreglumaður drepinn Að minnsta kosti tuttugu og einn lögreglumaður var skotinn til bana í árás írakskra andspyrnumanna á lögreglustöð í Haditha sem er 200 kílómetra vestur af Bagdad. Lögregla segir að andspyrnumenn hafi stormað inn, afvopnað lögreglumennina, raðað þeim upp og myrt. Erlent 7. nóvember 2004 00:01
Írökskum ráðherra sýnt banatilræði Fjármálaráðherra Íraks var sýnt banatilræði þegar öflug bílsprengja sprakk við hús hans í miðborg Bagdad í dag. Ráðherrann, Adel Abdul , sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna fyrir stundu að hann hafi ekki verið heima þegar sprengjan sprakk og því væri hann heill á húfi. Einn lífvarða Mahdis og einn lögreglumaður létust hins vegar í sprengingunni. Erlent 7. nóvember 2004 00:01
30 látnir og tugir særðir Að minnsta kosti þrjátíu hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Andspyrnumenn réðust auk þess inn á þrjár lögreglustöðvar þar sem kom til átaka og margir særðust. Erlent 6. nóvember 2004 00:01
37 hafa farist í Samarra Að minnsta kosti þrjátíu sjö hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Bandarískir og írakskir hermenn réðust inn í Samarra í síðasta mánuði til að ná borginni úr höndum uppreisnarmanna sem berjast hatrammlega á móti. Erlent 6. nóvember 2004 00:01
Deilt um kosningarnar í Írak Írakar munu eyða 90 milljónum dollara, sem samsvarar tæpum sjö milljörðum íslenskra króna, til að gera írökskum ríkiborgurum sem búa utan heimalandsins kleift að taka þátt í kosningunum sem fram fara í landinu á næsta ári. Sameinuðu þjóðirnar eru á móti þessari ráðagerð og segja hana of dýra, erfiða í framkvæmd og opna leiðir fyrir hugsanleg svik. Erlent 6. nóvember 2004 00:01
Þrír breskir hermenn létust í Írak Þrír breskir hermenn létu lífið þegar ráðist var á þá. Hermennirnir voru meðlimir hersveitar sem var nýlega flutt frá bresku herstjórnarsvæðunum við Basra inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers þar sem hefur verið mun meira um árásir en á breska svæðinu. Erlent 4. nóvember 2004 00:01
9 flugvallarstarfsmenn drepnir Að minnsta kosti níu létust þegar sprengja sprakk í rútu með starfsmönnum alþjóðaflugvallarins í Bagdad í morgun. Ekki er vitað um fjölda særðra. Einn starfsmaður olíumálaráðuneytis Íraks var jafnframt drepinn þegar byssumenn skutu hann til bana í höfuðborginni. Erlent 3. nóvember 2004 00:01
Aðstoðarborgarstjóri Bagdad myrtur Aðstoðarborgarstjóri Bagdad var í dag skotinn til bana af byssumönnum í borginni stríðshrjáðu. Fjórir lífverðir borgarstjórans særðust í árásinni. Skæruliðasamtökin „Her Ansar al-Sunna“ hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum. Erlent 1. nóvember 2004 00:01
Falin sprengiefni í Írak Peter Bouckaert, Starfsmaður mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sagði frá því í gær í samtali við fréttastofu AP að hann hafi tilkynnt bandarískum hermönnum um falinn geymslustað í borginni Baqouba, 55 kílómetrum norðaustur af Baghdad, í maí á síðasta ári. Erlent 30. október 2004 00:01
Voru að hlýða skipunum Íslensku friðargæsluliðarnir þrír sem slösuðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl sögðust hafa verið að hlýða skipunum er þeir stóðu vörð um teppabúð sem yfirmaður þeirra var að versla í. Þremenningarnir komu heim í gær. </font /></b /> Innlent 29. október 2004 00:01
Segjast hafa aflífað 11 Íraka Íröksku skæruliðasamtökin Her Ansar al-Sunna segjast hafa drepið ellefu menn úr þjóðvarðaliði Íraka sem þeir rændu í síðustu viku. Samtökin halda þessu fram á vefsíðu sinni í dag þar sem einnig eru birtar myndir af hinum meintu fórnarlömbum. Erlent 28. október 2004 00:01
Fleiri Bretar til Bagdad Bretar byrjuðu í morgun að flytja hluta herliðs síns frá Basra í Suður-Írak í átt til Bagdad, að ósk Bandaríkjamanna en í óþökk fjölmargra breskra þingmanna, þeirra á meðal þingmanna úr Verkamannaflokki Tonys Blairs forsætisráðherra. Mun friðvænlegra hefur verið í Basra en í Bagdad og mannfall þar hverfandi miðað við í höfuðborginni. Erlent 27. október 2004 00:01
Miklu magni sprengiefna stolið Nokkur hundruð tonn af sprengiefnum eru horfin úr vopnabúri Írakshers. Sprengiefnunum var stolið úr vopnabúri sem Alþjóða kjarnorkumálastofnunin hafði bent Bandaríkjaher sérstaklega á að hafa eftirlit með. Þjófar hafa ítrekað stolið sprengiefnum þar og hafa líkur verið leiddar að því að hluti efnisins hafi verið notaður í árásum vígamanna í Írak. Erlent 25. október 2004 00:01
Búlgarar særðust í sprengingu Tveir búlgarskir hermenn særðust alvarlega þegar bílsprengja sprakk í Kerbala í suðurhluta Íraks í dag. Þetta er haft eftir talsmanni varnarmálaráðuneytis Búlgaríu. Erlent 24. október 2004 00:01
51 hermaður drepinn Lík 51 írasks hermanns fundust á afskekktum vegi í austurhluta Íraks í gær, skammt frá írönsku landamærunum Erlent 24. október 2004 00:01
Heilsugæsla sprengd upp Öflug sprengjuárás var gerð á heilsugæslustöð í Bagdad, höfuðborg Íraks. Að sögn talsmanns Bandaríkjahers særðist enginn í árásinni Erlent 24. október 2004 00:01
Bandarískur embættismaður drepinn Bandarískur embættismaður var drepinn í sprengjuárás í Írak í morgun. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, greindi frá þessu í tilkynningu fyrir stundu. Erlent 24. október 2004 00:01
49 lík írakskra hermanna finnast Lík fjörutíu og níu írakskra hermanna hafa fundist skammt norðaustur af Bagdad að sögn yfirvalda í Írak. Þrjátíu og sjö fundust í gær og tólf við viðbótar í morgun. Svo virðist sem skæruliðar hafi setið fyrir hermönnunum þar sem þeir voru á leið heim í leyfi. Erlent 24. október 2004 00:01