Gríðarleg aukning á árásum Gríðarleg aukning hefur orðið á sprengjuárásum í Írak undangengnar tvær vikur, eða allt frá því tilkynnt var um nýja ríkisstjórn landsins. Ríflega sjötíu manns létu lífið í að minnsta kosti fjórum sjálfsmorðsárásum í dag. Erlent 11. maí 2005 00:01
82 milljarða dala aukafjárveiting Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt einróma aukafjárveitingu upp á 82 milljarða dollara vegna stríðsreksturs Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan og vegna baráttunnar gegn hryðjuverkum í heiminum. Þetta er fimmta aukafjárveitingin vegna hernaðarmála sem er samþykkt í Bandaríkjunum síðan 11. september árið 2001. Erlent 11. maí 2005 00:01
64 látnir, 110 særðir Minnst sextíu og fjórir hafa fallið í valinn og meira en eitt hundrað og tíu manns eru særðir eftir þrjár sjálfsmorðssprengjuárásir í Írak í morgun. Erlent 11. maí 2005 00:01
Mikið blóðbað í morgun Minnst sjötíu og einn er látinn eftir röð sjálfsmorðsárása í þremur borgum í Írak í morgun. Ekkert lát er á sprengjuárásum og mannránum í Írak þrátt fyrir að ný lýðræðislega kjörin ríkisstjórn, skipuð heimamönnum, hafi nú tekið til starfa. Erlent 11. maí 2005 00:01
Hringurinn þrengist um al-Zarqawi Öryggissveitir Íraka hafa handsamað lykilmann í hryðjuverkahópi Abu Musabs al-Zarqawis sem sagður er æðsti maður al-Qaida í landinu. Þetta er annar háttsettur leiðtogi innan skæruliðahóps Zarqawis sem handsamður er á stuttum tíma. Erlent 8. maí 2005 00:01
13 létust í bílsprengingu Að minnsta kosti níu Írakar og fjórir útlendingar létu lífið þegar bílsprengja sprakk í miðborg Bagdad í morgun. Sprengjan sprakk þegar erlendar öryggissveitir óku fram hjá svæðinu og er talið að þær hafi verið skotmark uppreisnarmanna. Lögreglan í Bagdad segir að þrjátíu og fimm hið minnsta hafi særst í árásinni. Erlent 7. maí 2005 00:01
Aðstoðarmaður al-Zarqawis í haldi Öryggissveitir Íraka hafa handsamað náinn aðstoðarmann hryðjuverkaleiðtogans Abu Musabs al-Zarqawis sem sagður er æðsti maður al-Qaida í landinu. Aðstoðarmaðurinn, Ghassan al-Rawi, hefur verið innsti koppur í búri í skipulagningu árása uppreisnarmanna í bænum Rawa í vesturhluta Íraks. Erlent 7. maí 2005 00:01
Fjórtán lík finnast Írakskir lögreglumenn fundu í morgun fjórtán lík í norðurhluta Bagdad og hafði fólkið allt verið skotið til bana. Greinilegt var að um aftöku var að ræða. Erlent 6. maí 2005 00:01
6,4 milljarðar horfnir Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hafið rannsókn á hvarfi hundrað milljón dollara, um 6,4 milljarða íslenskra króna, sem áttu að fara í uppbyggingarstarf í Írak. Flest bendir til þess að stórfellt fjármálamisferli hafi átt sér stað hjá bandarískum embættismönnum í borginni Hillah í Írak. Erlent 6. maí 2005 00:01
Lækkuð í tign vegna pyntinganna Janet Karpinski, yfirmaður herfangelsisins í Abu Ghraib, er fyrst yfirmaðurinn í Bandaríkjaher sem er refsað fyrir framgöngu hermanna þar. Í gærkvöldi lækkaði George Bush Bandaríkjaforseti hana í tign: hún var hershöfðingi en er nú ofursti. Erlent 6. maí 2005 00:01
Sjö lögreglumenn féllu Að minnsta kosti sjö lögreglumenn féllu í valinn og fimmtán særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Tíkrit í Írak í morgun. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp á námunda við rútu sem flytur lögreglumenn í og úr vinnu. Erlent 6. maí 2005 00:01
58 látnir eftir sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti 58 eru látnir eftir sjálfsmorðsárás í bænum Suwayra í Írak síðdegis. Árásarmaðurinn ók bifreið upp að mannfjölda á grænmetismarkaði í bænum og sprengdi sig þar í loft upp. Erlent 6. maí 2005 00:01
Ríkisstjórnin sór embættiseið Fyrsta lýðræðislega kjörna ríkisstjórnin í Írak í hálfa öld sór embættiseið í dag. Þrjá mánuði tók að mynda stjórnina eftir kosningarnar sem fram fóru í janúar. Innlent 3. maí 2005 00:01
Óttast árekstur herþotna Flak bandarískrar herþotu sem ekkert hafði spurst til síðan í gærkvöldi fannst í Írak í morgun. Lík flugmannsins fannst einnig á slysstað en hann var einn í vélinni. Þotan lagði af stað ásamt annarri þotu í venjubundið eftirlit í Írak í gærkvöldi. Ekki er enn vitað um afdrif hinnar þotunnar en óttast er að vélarnar hafi skollið hver á aðra í slæmu veðri. Erlent 3. maí 2005 00:01
Brottflutningur hefjist í desember Yfirmenn Bandaríkjahers stefna að því að hefja brottfluttning frá Írak strax í kjölfar þingkosninga í landinu í desember á þessu ári. Þetta kemur fram í leynilegri skýrslu sem breska dagblaðið <em>Daily Telegraph</em> hefur komist yfir. Erlent 2. maí 2005 00:01
Fjórir fallnir í morgun Að minnsta kosti fjórir hafa fallið í valinn og átta eru særðir eftir tvær sprengjuárásir í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sú fyrri beindist að bílalest írakskra hermanna en sú síðari sprakk í fjölfarinni götu í miðbænum og skemmdi íbúðarbyggingu og sex bíla. Erlent 2. maí 2005 00:01
83 Bretar fallnir í Írak Breskur hermaður lést eftir að sprengja sprakk í vegarkanti í Suður-Írak í dag. Hermaðurinn var á eftirlitsferð nærri borginni Al-Amarah þegar sprengjan sprakk við bíl sem hann var í ásamt félaga sínum sem særðist í árásinni. 83 breskir hermenn hafa fallið í Írak síðan stríðið í landinu hófst fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 2. maí 2005 00:01
Þrjár bílsprengjur í morgun Þrjár bílsprengjur sprungu í Bagdad í morgun. Að minnsta kosti átta létust og fjölmargir særðust. Árásirnar virðast vera liður í sprengjuherferð sem fór af stað eftir að ríkisstjórn var mynduð í Írak í síðustu viku. Erlent 2. maí 2005 00:01
Danir ákærðir fyrir pyntingar Fjórir herlögreglumenn og einn höfuðsmaður í danska hernum voru í dag leiddir fyrir rétt í Kaupmannahöfn en þeir eru ákærðir fyrir að hafa beitt írakska fanga harðræði. Sakborningarnir halda allir fram sakleysi sínu. Erlent 2. maí 2005 00:01
Ekkert lát á árásum Minnst átta manns hafa fallið í valinn og meira en þrjátíu eru særðir eftir nokkrar árásir uppreisnarmanna í Írak í morgun. Meðal þeirra sem létust var háttsettur embættismaður innan öryggismálaráðuneytis landsins. Hann var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Bagdad í morgun. Erlent 28. apríl 2005 00:01
Rifist um lykilráðuneyti Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Írak eftir þriggja mánaða þref. Enn er þó rifist um nokkur lykilráðuneyti. Erlent 28. apríl 2005 00:01
Ný ríkisstjórn samþykkt Írakska þingið samþykkti fyrir stundu nýja ríkisstjórn landsins, þá fyrstu sem er lýðræðislega kjörin í meira en hálfa öld, með miklum meirihluta atkvæða. Erlent 28. apríl 2005 00:01
Gíslarnir grátbiðja um aðstoð Mannræningjar í Írak hafa ákveðið að fresta því um einn dag að lífláta þrjá rúmenska blaðamenn sem þeir hafa í haldi. Al-Jazeera fréttastofan birti í gær myndir af Rúmenunum þremur þar sem þeir grátbiðja stjórnvöld í Rúmeníu um að fara með herafla sinn burt frá Írak. Erlent 27. apríl 2005 00:01
Íröksk þingkona myrt Írakska þingkonan Lamiya Khaduri var skotin til bana við heimili sitt í dag. Hún er fyrsti þingmaðurinn sem er drepinn í landinu síðan kosningar fóru fram þann 30. janúar. Erlent 27. apríl 2005 00:01
60 deyja daglega Fjögur hundruð árásir eru að jafnaði gerðar í Írak í hverri viku og daglega týna um sextíu manns lífi í þeim. Erlent 27. apríl 2005 00:01
Ný ríkisstjórn mynduð Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Írak. Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í dag. Kosið verður um ráðherralistann á írakska þinginu á morgun. Erlent 27. apríl 2005 00:01
Ábyrgð Rumsfelds könnuð Mannréttindasamtökin Human Rights Watch í Bandaríkjunum krefjast þess að ábyrgð Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra og annarra háttsettra yfirmanna bandaríkjahers, á misþyrmingum hermanna á föngum í Írak, verði könnuð. Erlent 24. apríl 2005 00:01
Sprengingar við lögregluskóla Að minnsta kosti sjö létust og tugir særðust í tveimur sjálfsmorðsprengingum sem gerðar voru í námunda við lögregluskóla í bænum Tíkrit í Írak í morgun. Fyrri sprengjan sprakk þegar árásarmaðurinn ók bifreið að byggingunni og sprengjan sprakk innan um fjölda lögreglumanna. Erlent 24. apríl 2005 00:01
23 þúsund borgarar taldir af Talið er að fleiri en þrjátíu þúsund manns, þar af 23 þúsund óbreyttir írakskir borgarar, hafi látið lífið í átökum í Írak frá því Bandaríkjamenn og Bretar gerðu innrás í landið fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 24. apríl 2005 00:01
Upptaka af morði á borgurum Hryðjuverkamenn í Írak sendu í dag frá sér upptöku þar sem sjá má þyrlu með óbreyttum borgurum skotna niður. Blóðugar árásir kostuðu á annan tug lífið í Írak í dag. Erlent 22. apríl 2005 00:01