Víðir um mál Oscars: „Réttur okkar þingmanna að hafa skoðun“ Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist hafa tekið sjálfstæða ákvörðun um að hafa samband við Útlendingastofnun og láta vita af því að hinn sautján ára gamli Oscar fengi líklega ríkisborgararétt. Brottflutningur sem átti að fara fram í dag hafi hvorki verið góð meðferð á skattfé né einstaklingi í ljósi stöðunnar. Innlent 3. júní 2025 12:20
Sakar Víði um pólitísk afskipti af máli Oscars Snorri Másson, þingmaður Miðflokssins, gerir athugasemdir við vinnubrögð Víðis Reynissonar, formanns allsherjarnefndar Alþingis, og sakar hann um pólitísk afskipti af máli Oscars Bocanegra með því að setja umsókn hans um ríkisborgararétt í forgang. Brottför Oscars var frestað í gær. Innlent 3. júní 2025 11:36
Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Fjöldi mála bíður nú þegar lokaspretturinn er hafinn á Alþingi. Fundað verður daglega í vikunni og alls eru sjö þingfundir eftir samkvæmt starfsáætlun. Þingflokksformaður Viðreisnar reiknar með að þinglokum seinki um nokkra daga en þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sakar ríkisstjórn um vanvirðingu við þingið og þingsköp. Innlent 2. júní 2025 21:17
Minnsta fylgi Framsóknar í 33 ára sögu þjóðarpúlsins Samfylkingin bætir við sig einu prósentustigi milli mánaða í þjóðarpúlsi Gallup, úr 29,4 prósentum í 30,7 prósent. Framsóknarflokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi en flokkurinn stendur samkvæmt könnuninni í 5,5 prósentum. Innlent 2. júní 2025 20:05
Hvergi af baki dottinn og fer með áminninguna fyrir Landsrétt Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson ætlar ekki að sætta sig við að sitja uppi með áminningu sem Úrskurðarnefnd lögmanna veitti honum vegna ágreinings um skipti dánarbús. Hann ætlar með málið fyrir Landsrétt og eftir atvikum alla leið í Hæstarétt. Innlent 2. júní 2025 16:51
Áminning Höskuldar stendur Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson fór fýluferð í dómsal þegar hann reyndi að fá áminningu frá Úrskurðarnefnd lögmanna hnekkt. Hann var áminntur fyrir að halda eftir fjármunum erfingja í dánarbúi og að villa um fyrir úrskurðarnefndinni. Innlent 2. júní 2025 13:12
Segir „rasistum“ að leggja íslenska fánanum og fá sér sinn eigin Þingmaður Samfylkingarinnar segir rasista hafa misnotað þjóðfána Íslendinga á mótmælum á Austurvelli um helgina. Hún hvetur mótmælendur til að fá sér sitt eigið merki, ef halda eigi fleiri mótmælafundi eins og þann sem fór fram á laugardag. Innlent 2. júní 2025 11:40
Hvar eru þau nú? Ráðherrar fráfarandi ríkisstjórnar hafa stofnað fyrirtæki, fengið mynd af sér með Boris Johnson og einn gengur nú Jakobsveginn. Aðrir hyggja á háskólanám, dúndra út Facebook-færslum eða lyfta níðþungum lóðum. Einn er orðinn forseti, þó ekki forseti Íslands. Já, það er líf eftir ráðherratíð. Lífið 2. júní 2025 08:00
Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingkona Flokks fólksins og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, segir afsögn sína úr embætti ráðherra hafa verið erfiðustu ákvörðun lífs síns. Eftir afsögnina hafi hún ekki farið úr húsi dögum saman. Innlent 1. júní 2025 12:28
Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda segir bæjarfulltrúi í Garðabæ. Málið megi ekki vera feimnismál, því ætli þjóðin að fjölga sér verði að gera róttækar breytingar á ýmsum kerfum, en halda í rétt kvenna. Innlent 30. maí 2025 21:30
Skynsamleg forgangsröðun fjár Skynsemin segir okkur að það sé betra að fyrirbyggja eldsvoða en að slökkva elda með tilheyrandi tjóni. En þegar kemur að heilbrigðiskerfinu hafa stjórnvöld þó ítrekað kosið að fjárfesta í slökkvistarfi fremur en í brunavörnum. Skoðun 30. maí 2025 15:32
„Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ Lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins varar við öllum hugmyndum um að grípa til sjaldgæfs ákvæðis sem heimilar takmörkun á ræðutíma þingmanna. Hugmyndir um að takmarka ræðutíma til að koma í veg fyrir mögulegt málþóf hafa verið viðraðar í fjölmiðlum. Atvinnuvegaráðherra telur ekki tímabært að ræða hvort gripið verði til þessa ráðs, en útilokar það ekki. Innlent 30. maí 2025 13:28
„Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, segir í viðtali við Bítið á Bylgjunni að nýtt strandveiðifrumvarp sem Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, lagði fram á Alþingi í gær muni búa til ný vandamál: fleiri báta á strandveiðum og óseðjandi kerfi. Innlent 30. maí 2025 13:02
Segir ráðgjöf Hafró kippt úr sambandi og „gúmmítékki“ sendur á næstu ríkisstjórn Þingmaður Miðflokksins segir frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingar á lögum um strandveiðar til bráðabirgða vera með ólíkindum. Nái málið óbreytt fram að ganga verði ráðagjöf Hafrannsóknarstofnunar kippt úr sambandi með hætti sem ekki hafi áður sést. Þessu segist ráðherra ósammála og ítrekar að um ákvæði til bráðabirgða sé að ræða, annað frumvarp um strandveiðar sé væntanlegt í haust. Innlent 29. maí 2025 13:55
Kynna bráðabirgðarúfærslu á strandveiðunum Atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um strandveiðar sem ætlað er að tryggja 48 daga veiðitímabil í sumar. Í greinargerð frumvarpsins segir að mögulega þurfi að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð, til að unnt sé að tryggja 48 daga tímabil. Innlent 29. maí 2025 11:22
Málið alvarlegra en stjórnmálamenn gera sér grein fyrir Formaður Blaðamannafélagsins segir hættulegt að stjórnmálamenn geri fjölmiðla að skotspæni sínum í auknu mæli. Málið sé alvarlegra en stjórnmálamennirnir geri sér grein fyrir. Innlent 27. maí 2025 22:16
Áskorun til Alþingis: Tryggið almannahagsmuni - afnemið samkeppnisundanþágu afurðastöðvanna Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin, SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og VR skora á Alþingi að samþykkja lagafrumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra, sem kveður á um að breytingar á búvörulögum, er gerðar voru í mars í fyrra, verði felldar úr gildi. Skoðun 27. maí 2025 14:02
Að vinda ofan af gullhúðun Ísland hefur ítrekað gengið lengra en nauðsynlegt er við innleiðingu reglna frá Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Þetta fyrirkomulag, sem oft er kallað gullhúðun eða blýhúðun, hefur allajafna í för með sér aukið og íþyngjandi flækjustig, hærri kostnað og meiri óvissu fyrir einstaklinga, sveitarfélög og fyrirtæki hér á landi. Skoðun 27. maí 2025 08:32
Lækkandi fæðingartíðni ekki hundaflauta: „Ég bara hafna algjörlega forsendunum“ Fæðingartíðni á Íslandi hefur aldrei verið lægri og þingmaður segir fólk hér á landi þurfa að fjölga sér meira. Hann kallar eftir umræðu og vill að stjórnvöld ráðist í aðgerðir. Innlent 26. maí 2025 21:31
Hætt í VG og segir spillingu grassera í íslenskum stjórnmálum Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, hefur sagt sig úr flokknum. Hún greinir frá þessu á Facebook og segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda. Innlent 26. maí 2025 21:22
„Einhver erfiðasti tími sem ég hef gengið í gegnum“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir, sem sagði af sér sem barna- og menntamálaráðherra fyrr á þessu ári, segir að nú sé að baki einn erfiðasti tími sem hún hafi gengið í gegnum. Hún þakkar fjölda fólks fyrir að styðja hana á þessu erfiða tímabili, og segir stuðninginn hafa haldið sér á floti. Innlent 26. maí 2025 19:22
Krókur á móti bragði færði útlendingamálin framar í röðinni Þingflokksformenn funduðu með forseta Alþingis nú síðdegis um að flýta afgreiðslu á útlendingamálum dómsmálaráðherra, eftir boð stjórnarandstöðunnar um það. Ráðherrann sagði um helgina að stjórnarandstaðan tefði fyrir afgreiðslu málanna á þingi. Að endingu náðust samningar um að færa mál ráðherrans framar á dagskrá. Innlent 26. maí 2025 18:00
Allt farið í hund og kött á þinginu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra var harðlega gagnrýnd af minnihlutanum á þingi fyrir orð sem hún lét falla á Sprengisandi að hann kæmi í veg fyrir að útlendingamálin hlytu umfjöllun á þinginu. Innlent 26. maí 2025 15:39
Ásthildur Lóa snýr aftur Ásthildur Lóa Þórsdóttir tekur sæti á Alþingi á ný í dag, eftir hafa verið í leyfi frá því að hún sagði af sér sem barna- og menntamálaráðherra. Innlent 26. maí 2025 13:17
Þingmaður úðaði eyrnameðali fyrir hunda í kokið á sér Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, úðaði eyrnaspreyi ætluðu hundum ofan í kokið á sér. Hundur hans er í meðferð vegna veikinda í eyrum og fékk lyf í úðaformi sem lítur næstum alveg eins út og algengt hálssprey við kvefeinkennum. Innlent 24. maí 2025 20:17
Fólk veltir fyrir sér hvort Áslaug Arna hafi verið slompuð í ræðustól Myndbandsbrot úr ræðu Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins hafa nú gengið manna í millum síðan á þriðjudagskvöld. Fólk veltir því fyrir sér hvort þingmaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis í ræðunni og er þetta orðinn hálfgerður samkvæmisleikur víða, að horfa á ræðuna sem er orðin ein sú þekktasta á vorþinginu, þó ekki hafi verið lagt upp með það. Innlent 23. maí 2025 13:27
Lítil hreyfing á fylgi stjórnmálaflokkanna Samfylkingin bætir lítillega við sig fylgi og mælist með yfir 27 prósent í nýjustu könnun Maskínu á fylgi stjórnmálaflokka sem eru eða voru á Alþingi. Sjálfstæðisflokkurinn tapar tveimur stigum frá síðustu könnun en takmarkaðar hreyfingar eru annars á fylgi flokkanna. Innlent 23. maí 2025 09:46
Grímur sjálfkjörinn í sæti Ingvars Grímur Grímsson er nýr annar varaforseti Alþingis. Hann var sjálfkjörinn í embættið, sem losnaði þegar Ingvar Þóroddsson samflokksmaður hans fór í leyfi til þess að sækja áfengismeðferð. Innlent 22. maí 2025 16:18
Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu Heilbrigðisráðherra boðar frumvarp um merkingu og markaðssetningu niktótínvara sem miðar að því að draga úr neyslu ungmenna. Þingmaður Framsóknar lýsir yfir þungum áhyggjum af aukinni notkun og segir ástandið óboðlegt. Innlent 22. maí 2025 14:34
Sakar Guðrúnu um sjúklega þráhyggju Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, sakar Guðrúnu Hafsteinsdóttur formann Sjálfstæðisflokksins um sjúklega þráhyggju í því sem kallað hefur verið Styrkjamálið. Innlent 22. maí 2025 14:16