„Gefur mér aukaorku þegar það er pressa“

Sigtryggur Arnar Björnsson segir Tindastól geta tekið margt jákvætt með sér úr síðasta leik inn í leik kvöldsins gegn Grindavík. Þó hann sé að sjálfsögðu ekki ánægður með tapið líður honum best þegar pressan er mest. Liðin mætast í öðrum leik úrslitaeinvígis Bónus deildar karla í Síkinu í kvöld. Grindavík marði 85-80 sigur í fyrsta leiknum eftir frábæran fyrri hálfleik. Tindastóll átti gott áhlaup í seinni hálfleik og var nálægt því að stela sigrinum en tókst það á endanum ekki.

309
04:00

Vinsælt í flokknum Körfuboltakvöld