Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu
Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Refsinguna fær hann eftir að skipta þurfti um vélarbúnað í bíl hans fyrir komandi keppnishelgi á Monza. Refsingin verður það mikil að hann fellur sjálfkrafa aftast á ráslínuna, óháð því hvernig honum gengur í tímatökunni. Það er sérstaklega sárt fyrir hinn 20 ára gamla Antonelli þar sem ítalski kappaksturinn í Monza er hans heimakappakstur.