Arsenal - Fulham 3-0
Skytturnar eru með sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir afskaplega öruggan þriggja marka sigur gegn Fulham. Viktor Gyökeres skoraði tvö mörk og lagði eitt mark upp. Bukayo Saka var líka í banastuði og bæði skoraði og lagði upp mark. Leando Trossard er þá einn ótalinn en hann átti líka stoðsendingu.