Handbolti

Hvert sæti skipað í Laugar­dals­höll

Aron Guðmundsson skrifar
Strákarnir okkar spila á heimavelli á morgun fyrir framan troðfulla Laugardalshöll.
Strákarnir okkar spila á heimavelli á morgun fyrir framan troðfulla Laugardalshöll. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu í fyrstu umferð undankeppni EM karla í handbolta sem fer fram í Laugardalshöll annað kvöld. 

HSÍ greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum og ljóst að mikil stemning er á meðal Íslendinga fyrir leiknum enda eitt fárra tækifæra sem fólk hefur til þess að horfa á Strákana okkar spila hér heima fyrir stóru stundina í janúar næstkomandi þegar þeir hefja leik á HM í Þýskalandi. 

Leikur Íslands og Úkraínu hefst klukkan hálf átta annað kvöld en drengirnir halda síðan til Eistlands þar sem tekur við leikur gegn heimamönnum á sunnudaginn næstkomandi.

Það er tilhlökkun í leikmannahópi Íslands fyrir leikjunum tveimur en auk Úkraínu og Eistlands er landslið Serbíu í riðli Íslands.

Gísli Þorgeir Kristjánsson er klár í leikinn gegn Úkraínumönnum en viðurkennir að hann viti ekki mikið um liðið.

„Þessir leikir leggjast mjög vel í mig. Auðvitað er bara alltaf mikil tilhlökkun að koma einhvern veginn saman landsliðið,“ segir Gísli.

„Ég ætla bara að vera alveg hreinskilinn. Ég hef ekki séð mikið af þeim og bara satt að segja þá eigum við að gera kröfur að vinna þetta lið og setja smá standard.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×