Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferðalag Eiður Þór Árnason skrifar 30. október 2026 23:55 Axel og fylgdarlið hans fyrir utan Bessastaði í kvöld. Aðsend Axel Máni Bjarnason skilaði sér á Bessastaði um klukkan sex í kvöld eftir að hafa skriðið þangað frá Njarðvík yfir tólf daga tímabil. Eins og sönnu nútímaungmenni sæmir var vegferðinni streymt í beinni útsendingu á samfélagsmiðlinum Tiktok þar sem fleiri þúsund manns fylgdust með athæfinu.
Þegar Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi eftir bréf fyrir ofurhugann. „Hún var að hrósa mér fyrir þolið og viljastyrkinn til að komast svona langt og var í rauninni að segja mér að ég ætti að fara varlega og ekki keyra mig út fyrir samfélagsmiðla.“ Er það eitthvað sem þú munt taka til umhugsunar? „Já, 100 prósent en samt er ég óendanlega stoltur af sjálfum mér fyrir að hafa klárað þetta og það voru hátt í 100 manns að elta mig þarna í lokin og 5.000 áhorfendur í beinni.“ Áhorfsmet hafi verið slegið í dag en hann mæli ekki með því að ungir aðdáendur reyni að leika athæfið eftir. Hvernig líður þér eftir þetta? „Mér líður ótrúlega vel. Ég er að drepast í öllum líkamanum, bólginn og þrútinn, allur skorinn. En andlega er ég bara í skýjunum.“ Vildi bæði veita innblástur og auglýsa smáforrit Axel segist hafa skriðið á bilinu þrjá til tíu klukkutíma á degi hverjum en í dag hafi hann skriðið í um sex tíma. Skilaboðin sem hann vilji senda út með þessu séu skýr. „Það sem þú trúir í hausnum þínum, sama hversu fáránlegt, sama hversu erfitt það er, þá getur þú náð þangað sem þú vilt ef þú leggur þig alltaf fram og notar hausinn.“ „Svo var ég í rauninni að auglýsa appið Alarm Friends. Eins og við Íslendingar vitum þá erum við mjög þunglynd þjóð þegar myrkrið fer að bresta á. Það á enginn að vakna einn. Þessi árstími er erfður fyrir krakka á grunnskólaaldri og markmiðið var í rauninni að biðja Höllu um að vera vinur minn í appinu. Mig langaði að fá að vakna með henni.“ Gunnar Björn Gunnarsson hefur verið með Axel í för á þessu ferðalagi og segist hafa þróað umrætt símaapp sem gæti útleggst sem vekjaraklukkuvinir. „Hugsunin á bak við þetta kom þegar ég var að vakna einn þunglyndur fyrir svona fimm árum. Þá hugsaði ég að það væri nú gaman að geta vaknað með bara einhverjum.“ „Það eru engar myndir og þetta eru bara nöfn. Þetta er ekki samfélagsmiðill upp á það að geta spjallað saman. Þú getur vaknað með fólki, þú getur búið til plön eins og Facebook-viðburði og afmæli.“ Sem dæmi sé Axel kominn með yfir níutíu vini á þessu appi. Það fólk geti þá séð hvenær hann vaknaði, hvort hann frestaði hringingunni og sent skilaboð. „Þetta er frítt fyrir alla að eilífu ef þú nærð í það árið 2026. Þá áttu allt sem kemur frá Alarm Friends. Þetta er ekki hugsað til að græða, heldur bara til að gefa eitthvað gott.“ Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira