Fótbolti

Infantino segist njóta gríðar­legs stuðnings

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianni Infantino er í góðum málum þegar kemur að endurkjöri hans sem forseti FIFA.
Gianni Infantino er í góðum málum þegar kemur að endurkjöri hans sem forseti FIFA. Getty/Robertus Pudyanto

Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, fullyrðir að hann njóti stuðnings meirihluta aðildarlandanna og neitar að gefast upp þrátt fyrir andstöðu.

Í heimsókn til Bakú, höfuðborgar Aserbaídsjan, svaraði Infantino aldrei þessu vant spurningum fjölmiðla, meðal annars frá breska ríkisútvarpinu og The Athletic. Þegar hann var spurður hvort hann hefði íhugað að segja af sér sem forseti FIFA eftir að fjárfestaáætlunin fyrir HM fór út um þúfur fór Infantino að hlæja.

„Sko, ég var kjörinn af 211 aðildarsamböndum alls staðar að úr heiminum og ég tel að það sem skipti máli sé að í samtökum eins og FIFA geti ólíkar skoðanir og sjónarmið átt sér stað, sagði Infantino.

„Það er ekkert slæmt við að vera ósammála,“ sagði Infantino. „Við sjáum það á hverjum degi í svo mörgum löndum heimsins. Það er í lagi að vera ósammála. Það er í lagi að hafa ólík sjónarmið, en síðan þurfum við að geta haldið áfram,“ sagði Infantino.

Undanfarna mánuði hefur forseti FIFA sætt gríðarlegum þrýstingi úr ýmsum áttum. Á sama tíma fullyrðir hann að hann njóti víðtæks stuðnings fyrir forsetakjörið á þinginu í mars.

Á föstudag fékk hann stuðningsyfirlýsingu frá Knattspyrnusambandi Asíu (AFC), sem er fulltrúi 46 þjóða. Þótt það skuldbindi ekki öll samböndin til að kjósa Svisslendinginn virðist Infantino eins og stendur eiga fleiri stuðningsmenn en andstæðinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×