Enski boltinn

Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti marka­metið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Benoný Breki Andrésson og félagar í Stockport County náðu í stig á útivelli og eru tveimur stigum frá toppsætinu.
Benoný Breki Andrésson og félagar í Stockport County náðu í stig á útivelli og eru tveimur stigum frá toppsætinu. Getty/Harry McGuire

Benoný Breki Andrésson og félagar í Stockport County gerðu jafntefli við Notts County í ensku C-deildinni í dag.

Stockport County lenti undir strax á elleftu mínútu og var enn undir þegar Benoný Breki kom inn á völlinn sem varamaður á 64. mínútu leiksins.

Benoný lagði upp jöfnunarmarkið á 81. mínútu en það skoraði Adama Sidibeh eftir að hafa fengið stoðsendingu frá íslenska framherjanum.

Benoný hjálpaði því sínu liði að ná í stigið en á sama tíma var hann að missa markametið í efstu deild á Íslandi þegar Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk í 8-3 sigri KR á Blikum.

Benoný Breki hefur ekki skoraði í deildinni á leiktíðinni en þetta var hans önnur stoðsending.

Stockport County er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Huddersfield.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×