Lífið

Gengst við slúðursögu um þungunarpróf

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Halla Gunnarsdóttir lagði leið sína í Árneshrepp til að drena hús.
Halla Gunnarsdóttir lagði leið sína í Árneshrepp til að drena hús. Vísir/Bjarni

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, gengst við slúðurpistli um að hún hafi keypt þungunarpróf. Hún var sjálf ólétt en festi kaup á prófinu til að stríða íbúum Árneshrepps.

„Mannlíf hefur svipt hulunni af gríðarlegu leyndarmáli í mínu lífi, það er þegar ég keypti þungunarpróf í Kaupfélaginu í Norðurfirði á Ströndum,“ skrifar Halla í færslu á Facebook.

Í morgun birtist nafnlaus pistill undir slúðurdálki Mannlífs með fyrirsögninni „Þungunarpróf Höllu“. Þar er reifuð saga um að eitt sinn hafi Halla fest kaup á þungunarprófi í umræddu kaupfélagi til að villa fyrir íbúum sem gerðu ráð fyrir því að íbúi á svæðinu væri barnshafandi.

Halla gengst við þessari sögu en segir hinn raunverulega þolanda vera Reyni Traustason, sem þá var skálavörður í skála Ferðafélags Íslands. Hann hafi gengið í verslunina hvern dag og talið þungunarprófin til að athuga hvort eitthvað þeirra hefði selst. 

„Þorpið þurfti sárlega á börnum að halda til að leggjast ekki af og kaupfélag eins og þetta pantar ekkert þungunarpróf nema einhver óski sérstaklega eftir því. Kaupfélagsstjórinn gaf ekkert uppi, hún hélt trúnað við sitt samfélag eins og góðum embættismönnum sæmir,“ skrifar Halla.

Halla var stödd hjá vinkonu sinni sem búsett var í Reykjafirði til að drena húsið hennar. Hún hafi ekki getað setið á sér, skrapp í kaupfélagið og spurði hvort þar væri hægt að fá óléttupróf. Á þessum tíma var hún gengin fjóra mánuði og segir að það hafi sést á henni. 

Í pistli Mannlífs segir að vart annað hafi verið rætt í hreppnum og fóru vonir vaxandi um að ein af þremur konunum á barneignaaldri væri ólétt.

„En háólétt Halla hló alla leið til Reykjavíkur með þungunarpróf í farangrinum,“ segir í pistlinum.

Halla tekur fram að eftir allt saman hafi enginn pantað þungunarprófin heldur fór kaupfélagsstjórinn línuvillt og hafði ætlað sér að panta þorskhnakka.

„Árneshreppi óska ég alls hins besta og vona að þangað rati sem flest þungunarpróf sem reynist jákvæð,“ skrifar Halla í lok færslunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.