„Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2026 23:33 Dejan Kulusevski er loksins kominn til baka og getur farið að hjálpa Tottenham inn á vellinum. Liðið var við toppinn þegar hann meiddist en síðan hefur margt breyst. EPA/ADAM VAUGHAN Endurkoma sænska framherjans Dejan Kulusevski inn á völlinn í gærkvöldi var ekki minni sigur en langþráður fyrsti sigur Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Meiðslamartröð þessa öfluga leikmanns var líka loksins á enda.
Kulusevski hafði ekki stigið inn á völlinn síðan í maí 2025: „Fyrir nokkrum mánuðum þurfti ég að segja mínum nánustu að kannski myndi þetta ekki ganga upp, en innst inni vissi ég alltaf að ég myndi hafa það,“ sagði Kulusevski eftir leikinn. „Ég gafst aldrei upp.“ Dejan Kulusevski við blaðamann Gazzetta dello Sport en hann þurfti að bíða í 526 daga eftir umbuninni. Hann kom inn á sem varamaður í sigri á Coventry en á hliðarlínunni mátti sjá dóttur hans Leonie í Tottenham-treyju með númerinu 526 og áletruninni „Hetjan mín“ á bakinu. Þetta var mögnuð stund fyrir fjölskylduna. View this post on Instagram A post shared by Tottenham Hotspur (@spursofficial) Kulusevski er kominn aftur inn á völlinn eftir langa þrautagöngu í kjölfar meiðsla á hnéskel í hægra hné sem urðu til þess að hann missti af heilu tímabili og kostuðu hann heimsmeistaramótið sem hann hafði dreymt um með Svíþjóð. Þetta var mjög flókið „Endurkoman virtist nánast ómöguleg. Þetta var mjög flókið, en ég hafði á tilfinningunni að ég myndi spila fótbolta aftur. Ég þurfti bara að trúa því og það gerði ég.“ Leið Kulusevskis var ekki auðveld og enginn, allra síst Tottenham, bjóst við að hún yrði svona löng. Dóttirin Leonie tók á móti föður sínum í sérstakri treyju í tilefni tímamótanna.na.@dejan.k10 Kulusevski, sem er nú 26 ára, hafði fyrir gærkvöldið síðast spilað 11. maí 2025, þegar hann lék 18 mínútur í úrvalsdeildinni gegn Crystal Palace áður en hann neyddist til að gefast upp. Hnéskelin brotnaði Það sem í fyrstu var kynnt sem högg á hægra hné reyndist vera brot á hnéskel og aðgerð með óvissum batatíma. „Ég missti aldrei vonina, en stundum virtist þetta ómögulegt,“ sagði Kulusevski. „Fyrir aðeins nokkrum mánuðum þurfti ég að segja mínum nánustu að kannski myndi þetta ekki ganga upp, en innst inni vissi ég alltaf að ég myndi hafa það. Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig, og jafnvel þegar þetta virtist ómögulegt og allir voru að missa vonina gafst ég aldrei upp. Guð gaf mér styrk til að halda áfram, ég get ekki eignað mér allan heiðurinn af því sem ég gerði því ég gerði það ekki einn. Hann var með mér á hverjum degi,“ sagði Kulusevski. „Ég naut mín virkilega“ „Nú er ég tilbúinn að spila fótbolta,“ sagði Kulusevski. „Ég naut mín, ég naut mín virkilega. Jafnvel þótt ég líti nú á mig sem aðra manneskju,“ sagði hann. „Ég er sami strákurinn sem vill bara spila fótbolta, en ég er aðeins klókari. Ímyndaðu þér stöðuna: allir gefast upp, en þú getur það ekki því fyrir þér er fótbolti eins og að anda. Og í tvö ár gat ég ekki andað. En ég átti samt fjölskyldu og liðsfélaga: ég mætti með bros á vör, reyndi alltaf að hvetja þá áfram, og til þess þarf mikla ást, mikið hugrekki og mikla sannfæringu.“ View this post on Instagram A post shared by Tottenham Hotspur (@spursofficial) Kulusevski er ekki lengur í búningsklefa Tottenham bara til að hvetja liðsfélaga sína, heldur til að breyta gangi leikja. Hann andar á ný og sparkar í bolta á ný. Annað andrúmsloft í búningsklefanum „Hann og James Maddison eru öðruvísi leikmenn: þeir búa yfir hæfileikum, reynslu og persónuleika. Það ríkir annað andrúmsloft í búningsklefanum þegar þeir eru til staðar,“ sagði knattspyrnustjórinn Roberto De Zerbi. „Hann er ótrúlegur knattspyrnustjóri, mér líkar mjög vel við hann og ég hlakka til að halda áfram að vinna með honum,“ sagði Kulusevski. View this post on Instagram A post shared by Dejan Kulusevski (@dejan.k10)
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Sjá meira