Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Aron Guðmundsson skrifar 18. október 2026 18:49 Kristinn Jónsson í Evrópuleik með Breiðabliki vísir/Diego Kristinn Jónsson kveður Breiðablik eftir yfirstandandi tímabil en ákvörðunin er ekki hans eigin. Þessi mikli reynslubolti hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort skórnir fari á hilluna en er þakklátur fyrir tíma sinn hjá félaginu.
Kristinn tjáir sig um vendingarnar í færslu á Facebook en tæp tuttugu ár hafa liðið síðan hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið. „Nú er því miður komið að kveðjustund. Ég hafði alltaf einhvern veginn ímyndað mér að þessi ákvörðun yrði mín, en hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér,“ skrifar Kristinn í færslu sinni. „Mér finnst ég enn hafa ýmislegt að gefa og hefði viljað halda áfram að leggja mitt af mörkum, bæði á vellinum og með því að miðla reynslunni til yngri strákanna sem eru að taka við. Þótt ég hefði kosið annað framhald er ég stoltur og þakklátur fyrir allt sem ég hef fengið að upplifa með félaginu.“ Kristinn var hluti af afar efnilegum árgöngum sem komu upp í gegnum starf Breiðabliks á sínum tíma. Leikmenn eins og Jóhann Berg Guðmundsson, Kristinn Steindórsson og Guðmundur Kristjánsson. „Það hefur verið sérstakt að fá að vera hluti af svo mörgum tímamótum í sögu Breiðabliks: fyrsta bikarmeistaratitlinum, fyrsta Evrópuleiknum, fyrsta Evrópusigrinum og fyrsta Íslandsmeistaratitlinum. Ég var með þegar Breiðablik vann sitt fyrsta Evrópueinvígi og komst í fyrsta sinn áfram úr annarri umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Að skora í fyrsta sigri Breiðabliks í deildakeppni Sambandsdeildarinnar er líka minning sem ég mun alltaf halda upp á.“ Þá er Kristinn jafnframt stoltur af því að vera fyrsti og enn sem komið er eini leikmaður Breiðabliks sem hefur orðið stoðsendingahæstur í efstu deild, og sá eini sem lék í báðum úrslitaleikjunum sem færðu félaginu bikarmeistaratitil. „Núna er bara að njóta síðustu daganna með liðinu. Hvort skórnir fari á hilluna eða ekki á eftir að koma í ljós, en ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni.“ Færslu Kristins í heild sinni má sjá hér:
Íslenski boltinn Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Sjá meira