Getur ekki lengið troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. október 2026 15:17 Píanómaðurinn Billy Joel getur ekki lengur komið fram vegna heilakvilla sem hann greindist með í fyrra. EPA Tónlistarmaðurinn Billy Joel segist hvorki geta ekið bíl né komið fram á tónleikum eftir að hann greindist með sjaldgæfa heilakvillann fullorðinsvatnshöfuð (e. normal pressure hydrocephalus) á síðasta ári. Taugasjúkdómalæknir sagði popparanum að framkoma á tónleikum hafi svipuð áhrif á hann og heilahristingur.
Hinn 77 ára Billy Joel greindi frá því á síðasta ári að hann hefði greinst með heilakvillann fullorðinsvatnshöfuð. Píanómaðurinn var í viðtali hjá Hollywood Reporter í vikunni og sagði kvillann hafa haft mikil áhrif á sitt daglega líf, hann gæti hvorki ekið né komið fram á tónleikum. „Ég má ekki keyra,“ sagði Joel í viðtalinu og bætti við að hann þyrfti að taka „röð af prófum“ áður en hann veit hvort hann geti komið fram á tónleikum aftur. Vegna greiningarinnar ákvað Joel að selja meira en sjötíu af mótorhjólum sínum á uppboði. „Ég endaði með meira en hundrað mótorhjól og sannleikurinn er sá að þú getur bara ekið einu þeirra í einu. Ég er kominn hátt á áttræðisaldur og áttaði mig á því að ég get ekki ekið eins mikið og áður,“ sagði Joel. „Ég vil ekki deyja eins og padda á bílrúðu svo ég ákvað að selja slatta af þeim á uppboði.“ Þegar orðinn heyrnarlaus af rokkinu Greiningin hefði gert að verkum að það væri enn erfiðara fyrir hann að keyra en áður. Fullorðinsvatnshöfuð myndast þegar afrennsli mænuvökva truflast og vatnsmagn eykst inni í höfðinu og getur valdið ýmsum einkennum svo sem ógleði, uppköstum, sjónsviðsbreytingum og jafnvel skertri meðvitund. „Ég elska mótorhjól. Ég elska mótorhjólaakstur. Ég elska nafnleyndina sem fylgir því,“ sagði Joel og bætti við: „Ég var ekki safnari, ég var ökuþór. Svo ég áttaði mig á því að það væri kominn tími á að láta þau af hendi.“ Joel segir taugasjúkdómalækni sinn hafa sagt honum að hann gæti ekki lengur troðið upp því í hvert skipti sem hann kæmi fram á tónleikum „væri eins og hann fengi heilahristing“ sökum hávaðans. Billy Joel ræður illa við hávaða í dag.Getty „Rokk og ról er hávært. Rokk og ról er þegar búið að gera mig heyrnarlausan,“ segir Joel og bætir við að þar spili inn í ljósin, hljóðið, áhorfendur, stressið og orkan sem fari í tónleikana. „Það er margt í gangi þegar þú ert á sviði. Og þau sögðu: „Þú ættir ekki að vera að gera það núna“. Svo þau þurfa að gera próf á mér til að sjá hvort ég geti byrjað að koma fram aftur, sem ég myndi vilja gera,“ segir hann. Joel hætti við tónleikaferðalag sitt í fyrra eftir greininguna og í kjölfar þess að hann féll til jarðar á tónleikum sínum í Montville í Connecticut í mars 2025. Popparinn fór í heilaskurðaðgerð í síðasta mánuði til að bæta jafnvægi sitt og minni. „Ég vil ekki tapa vitinu. Það er erfitt að átta sig á því hvað er aldur og hvað er heilkenni svo ég samþykkti að fara í samveitu og fór í aðgerð þar sem þau komu fyrir samveitu í heilanum á mér og það bætti hlutina,“ sagði popparinn í nýlegu viðtali.
Tónlist Bandaríkin Heilbrigðismál Tengdar fréttir Hélt við konu besta vinar síns Popparinn Billy Joel reyndi tvívegis að svipta sig lífi eftir að hafa haldið við eiginkonu besta vinar síns, Jon Small þegar þeir voru tvítugir. Í fyrra skiptið féll Joel í margra daga dá og í það seinna bjargaði Small honum. 6. júní 2025 16:12 Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Lífið samstarf Fleiri fréttir Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Sjá meira
Hélt við konu besta vinar síns Popparinn Billy Joel reyndi tvívegis að svipta sig lífi eftir að hafa haldið við eiginkonu besta vinar síns, Jon Small þegar þeir voru tvítugir. Í fyrra skiptið féll Joel í margra daga dá og í það seinna bjargaði Small honum. 6. júní 2025 16:12