Enski boltinn

Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið

Valur Páll Eiríksson skrifar
De Zerbi fagnaði skapofsa leikmanns síns í leik gærdagsins.
De Zerbi fagnaði skapofsa leikmanns síns í leik gærdagsins. Getty

Roberto De Zerbi, þjálfari Tottenham, segir brjálæðiskast leikmanns síns Rodrigo Bentancur hafa verið nákvæmlega það sem liðið þurfti í leik við Manchester United í gær. Bentancur fékk rautt spjald en Tottenham bjargaði stigi þrátt fyrir að vera með tíu menn gegn ellefu.

Tottenham var umtalsvert betri aðilinn stærstan hluta leiksins við United en virtist fyrirmunað að skora. Það var því gegn gangi leiksins sem United komst yfir með marki Bryan Mbeumo rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Skömmu eftir það fór Rodrigo Bentancur í hressilega tæklingu á Luke Shaw, leikmann United. Shaw brást ókvæða við og hrinti Bentancur í jörðina.

Bentancur stökk á fætur og setti höfuðið í höfuð Shaws. Hann fékk að launum rautt spjald en Shaw slapp með gult.

Tíu gegn ellefu tókst Tottenham að jafna í uppbótartíma með marki Dominic Solanke og leiknum lauk 1-1.

De Zerbi var ekkert sérlega sáttur við að lærisveinn hans hafi fengið rautt spjald, en fagnar þó skapi Bentancur.

„Mér líkaði atvikið með rauða spjaldið hjá Rodrigo. Við þurfum á svona atvikum að halda núna, ekki að fá rautt spjald, heldur að sætta okkur ekki við ósigur, sætta okkur ekki við að fá á okkur mörk,“ sagði De Zerbi við Sky Sports eftir leik.

„Við verðum að bregðast við á allan þann hátt sem við getum. Þetta er slæm leið, ekki rétta leiðin, en ég kyssti Bentancur í búningsklefanum því við þurfum á svona viðbrögðum að halda, viðbrögðum sem sýna karakter.

Fótbolti snýst um karakter.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×