Fótbolti

Messi og Suárez í stuði

Valur Páll Eiríksson skrifar
Messi setti tvö.
Messi setti tvö. AP

Lionel Messi og Luis Suárez voru á flugi með Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Dagur Dan Þórhallsson og hans menn í San Diego áttu erfiðari dag.

Messi og Suárez skoruðu tvö mörk hvor í 4-0 sigri Inter Miami á DC United í nótt. Suárez skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og Messi bætti tveimur við eftir hlé í fyrsta leik hans eftir kveðjuleik með argentínska landsliðinu í nýliðnu landsleikjahléi.

Inter Miami er í öðru sæti Austurdeildar MLS með 49 stig, heilum 14 stigum á eftir Nashville SC sem hefur haft mikla yfirburði í ár.

Íslenski landsliðsmaðurinn Dagur Dan Þórhallsson sat allan tímann á bekknum hjá liði San Diego sem tapaði 4-1 fyrir New York Red Bulls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×