„Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ Valur Páll Eiríksson skrifar 10. október 2026 11:46 Sigurður Heiðar Höskuldsson er spenntur fyrir því að komast aftur út á völl og mæta Eyjamönnum í gríðarlega mikilvægum leik í dag. Vísir / Hulda Margrét Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, hlakkar til að komast aftur út á völl með sitt lið eftir langa landsliðspásu. Gríðarlega mikilvægur leikur við ÍBV er fram undan á Akureyri í dag.
Þrír leikir fara fram í neðri hluta deildarinnar í dag og þeir eru allir klukkan 14:00. Flestra augu eru á leik Þórs og ÍBV og gert ráð fyrir að taplið þess leiks sé gott sem fallið. ÍBV er á botni deildarinnar með 19 stig en Þór með 21 stig í efra fallsætinu. Þórsarar hafa líkt og aðrir haft langan tíma til að undirbúa leikinn eftir þriggja vikna landsleikjapásu og menn spenntir að komast aftur út á völl. „Já, já. Við höfðum alveg gott af viku pásu og sérstaklega eftir leikinn sem við spiluðum á móti KA. Það var gott að komast aðeins frá þessu og fá að pústa aðeins í einrúmi. Við áttum svo fína æfingaviku og spiluðum svo alvöru æfingaleik við KR síðustu helgi. Þannig að ég held að undirbúningurinn okkar í þessu fríi sé bara búinn að vera mjög góður og eins og þú segir, bara spenningur að spila þennan leik á eftir, það er klárt,“ segir Sigurður í samtali við Vísi. Er eitthvað sérstakt sem þið hafið einblínt á, á þessum æfingum? „Við erum búnir að vera einblína á hugarfarið. Að finna hjá okkur sjálfstraust og kraft til að einhvern veginn sækja þessa þrjá leiki, ekki koma hræddir inn í þetta og eitthvað varkárir,“ segir Sigurður en þrjár umferðir eru eftir af deildinni sem skera úr um það hvort Þór haldi sæti sínu eða ekki. „Við ætlum bara að mæta með kassann úti, trúa á okkar og reyna að draga fram þetta hjá okkur sem að við höfum gert þegar við höfum verið góðir. Þá höfum við verið mjög góðir að okkar mati, en það hefur ekki verið nægilega oft og ekki nægilega lengi en samt þannig bragur á okkur svona undanfarið – fyrir utan eða síðasta leik,“ Ég meina, við erum búnir að vinna þrjá síðustu fjórum heimaleikjum þannig að sjálfstraustið er þarna og trúin á þetta er til staðar. Þannig að við erum bara búnir að vera að einblína á það og ætlum bara að finna það hjá okkur í þessum síðustu leikjum,“ segir Sigurður. Talandi um sjálfstraust, þá eruð þið nú að mæta Eyjaliði sem að hefur nú varla unnið leik síðan fyrir stríð. Það er 4. júlí sem þeir vinna síðast leik. Hvernig býstu við Eyjamönnunum í dag? „Ég bara býst við þeim dýrvitlausum. Ég held að þeir horfi á það þannig að þeir megi ekki tapa. Þannig að þeir koma dýrvitlausir með blóð á tönnunum en við þurfum einhvern veginn að stoppa það sem að þeir eru góðir í og ekki hleypa þeim í sinn leik. Þeir eru að mínu mati betra lið en taflan sýnir og þeir verða mjög erfiðir en við þurfum einhvern veginn líka að reyna að kveikja í hræðslu hjá þeim að mega ekki tapa og það er svona það sem að svona okkar markmið,“ segir Sigurður en Þór er tveimur stigum ofar en ÍBV sem situr á botninum og bæði í fallsæti. Vinni Þór leik dagsins og KA tapi sínum leik fyrir Stjörnunni í Garðabæ fara Þórsarar upp fyrir granna sína af fallsvæðinu. Það er draumastaðan eftir daginn. „Það er það klárlega. En það er bara gamla klisjan. Við erum bara með fókus á sjálfa okkur og markmiðið okkar er náttúrulega bara að vinna alla þessa þrjá leiki sem eftir eru, tveir heimaleikir og svo útileikur í síðustu umferð. Þannig að við höfum bara þannig trú á okkur og ég held að ef við klárum okkar það sem eftir er að þá munum við alltaf enda uppi sko,“ segir Sigurður. Leikir dagsins í Bestu deild karla: 14:00 Stjarnan - KA (Sýn Sport Ísland) 14:00 Valur - FH (Sýn Sport Ísland 2) 14:00 Þór - ÍBV (Sýn Sport Ísland 3) 19:15 Fram - KR (Sýn Sport Ísland)
Þór Akureyri ÍBV Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn Þór - ÍBV 1-0 | Gott sem felldu Eyjamenn Íslenski boltinn Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þór - ÍBV | Fallbaráttuslagur af bestu gerð Valur - FH | Stórleikur á Hlíðarenda Stjarnan - KA | Gestirnir þurfa stig í Garðabænum „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Sjá meira