Fótbolti

Tap í heima­landinu reyndist síðasti naglinn í kistuna

Aron Guðmundsson skrifar
Montella í sínum síðasta leik sem landsliðsþjálfari Tyrklands
Montella í sínum síðasta leik sem landsliðsþjálfari Tyrklands Vísir/Getty

Ítalinn Vincenzo Montella hefur verið rekinn úr starfi landsliðsþjálfara tyrkneska karlalandsliðsins í fótbolta.

Þetta er staðfest í yfirlýsingu hjá tyrkneska knattspyrnusambandinu en Tyrkir eru nýkomnir úr erfiðum landsleikjaglugga í A-deild Þjóðadeildar UEFA.

Þar tapaði liðið öllum fjórum leikjum sínum. Einum gegn Frakklandi, tveimur gegn Ítalíu og einum gegn Belgíu.

Síðasti leikur Tyrkja undir stjórn Montella var 3-1 tap á útivelli, í heimalandi Montella. 

Tyrkir eru án stiga í riðli sínum í Þjóðadeildinni, hafa aðeins skorað tvö mörk og fengið á sig ellefu. Fall niður í B-deildina blasir við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×