Lífið

Meiri­hluti stjórnar Rúv vill snið­ganga Euro­vision

Freyja Þórisdóttir skrifar
Ákvörðunin liggur hjá stjórn Ríkisútvarpsins en ekki útvarpsstjóra. Á myndinni má sjá Væb-bræður en þeir unnu Söngvakeppnina í fyrra með lagið Róa.
Ákvörðunin liggur hjá stjórn Ríkisútvarpsins en ekki útvarpsstjóra. Á myndinni má sjá Væb-bræður en þeir unnu Söngvakeppnina í fyrra með lagið Róa. Vísir/Hulda Margrét

Meirihluti stjórnarmanna Ríkisútvarpsins vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni. Líkt og frægt er orðið tók Ísland ekki þátt í keppninni í ár vegna þátttöku Ísraels í keppninni og þá var heldur engin Söngvakeppni haldin, í fyrsta sinn um árabil.

Rúv greinir fyrst frá en ákvörðunin var tekin á fundi stjórnar í dag. Stjórnarmeðlimurinn Diljá Ámundadóttir Zoëga deildi bókun af fundinum á Facebook-síðu sinni en þar kemur meðal annars fram:

„… beina undirritaðir stjórnarmenn því til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU að Ríkisútvarpið taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni. Fyrri áskorun til EBU um að Ísrael verði vísað úr keppninni er ítrekuð og þess óskað að útvarpsstjóri komi þeirri ítrekun á framfæri.“

Þá greinir hún frá því að sex af níu stjórnarmeðlimum hafi lagt bókunina fram.

Fréttin verður uppfærð.


Tengdar fréttir

Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku

Stjórn Ríkisútvarpsins hefur ekki tekið neina ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision söngvakeppninni árið 2027. Stjórnin fundar næst eftir rúmar tvær vikur en líklega mun ekkert liggja fyrir um þáttöku fyrr en í desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.