Fótbolti

Líf og  Emelía með: Hópurinn sem á að taka næst­síðasta skrefið að HM í Brasilíu

Sindri Sverrisson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir fær nýjan makker með sér í miðja vörn Íslands því Ingibjörg Sigurðardóttir er ólétt.
Glódís Perla Viggósdóttir fær nýjan makker með sér í miðja vörn Íslands því Ingibjörg Sigurðardóttir er ólétt. Getty/Bradley Collyer

Líf Joostdóttir van Bemmel úr Breiðabliki og Emelía Óskarsdóttir, framherji Danmerkurmeistara Köge, eru báðar í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu í tveimur leikjum í fyrri umferð umspils um sæti á HM í Brasilíu.

Líf og Emelía eiga hvorug A-landsleik en þær eru á meðal leikmanna sem koma inn nú þegar Sandra María Jessen, Sædís Rún Heiðarsdóttir og Linda Líf Boama eru úr leik vegna meiðsla, og Ingibjörg Sigurðardóttir ólétt.

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari kynnir hópinn á blaðamannafundi í beinni útsendingu á Vísi klukkan 13:15.

Hópurinn sem mætir Króatíu í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM 2027.KSÍ

Fyrri leikurinn við Króatíu er á útivelli 9. október en sá seinni á Laugardalsvelli 13. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×