George Gillett látinn Valur Páll Eiríksson skrifar 24. september 2026 09:31 George Gillett (t.v.) ásamt Tom Hicks eftir kaupin á Liverpool árið 2007. Mynd/AFP George Gillett, fyrrverandi eigandi Liverpool, er látinn 87 ára að aldri.
Gillett keypti Liverpool ásamt Tom Hicks árið 2007. Hicks lést í desember síðastliðnum, 79 ára gamall. Gillett og Hicks keyptu Liverpool af John Moores en voru umdeildir og heldur óvinsælir í eigendatíð sinni enda hafði fjármálahrunið árið 2008 slæm áhrif á fjárhagsstöðu beggja. Þeir seldu félagið í október 2010 til New England Sports Ventures, sem leitt var af John W. Henry, og hefur Liverpool haldist í þeirri eigu síðan. Gillett var einnig eigandi Montreal Canadiens í NHL-deildinni frá 2001 til 2009 og var vinsælli þar en á Englandi. Gillett þótti sérlega jákvæður og skemmtilegur. „Ástríða George Gillett fyrir Montreal Canadiens og skuldbinding hans við Montreal-borg komu skýrt fram á meðan hann var eigandi þessa sögufræga liðs frá 2001 til 2009. Hann leiddi Canadiens í gegnum mikilvægan kafla í sögu þeirra sem fól í sér undirbúning fyrir aldarafmælishátíðina, þar sem ríkri arfleifð liðsins og mikilvægi þess í íþróttinni var fagnað,“ segir Gary Bettmann, formaður NHL-deildarinnar í yfirlýsingu. „George var vinur sem ég naut þess alltaf að vera í félagsskap við, ráð hans voru viturleg og orka hans smitandi. Framlag hans til íshokkíheimsins skildi eftir sig varanleg spor og arfleifð hans mun lifa áfram í íþróttinni um ókomin ár. National Hockey League sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og fjölmargra vina,“ segir Bettmann enn fremur. Gillett átti Harlem Globetrotters um tíma og einnig hlut í Miami Dolphins í NFL-deildinni.
Íshokkí Liverpool FC Andlát Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Sjá meira