Fótbolti

Bein út­sending: Nýr hópur Ís­lands kynntur og Arnar mætir í spjall

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Gunnlaugsson er á leið með íslenska landsliðið í fjögurra leikja törn.
Arnar Gunnlaugsson er á leið með íslenska landsliðið í fjögurra leikja törn. Getty/Jane Barlow

Vísir verður með beina útsendingu frá höfuðstöðvum KSÍ í dag þar sem Arnar Gunnlaugsson kynnir landsliðshóp sinn fyrir fyrstu fjóra leikina í Þjóðadeildinni. 

Eftir blaðamannafundinn mætir Arnar beint í viðtal við þá Henry Birgi Gunnarsson og Val Pál Eiríksson, fulltrúa Vísis á staðnum, í beinni útsendingu.

Útsendingin hefst klukkan 13:10 og blaðamannafundurinn sjálfur hefst fimm mínútum síðar, í spilaranum hér að neðan og á sjónvarpsrásinni Vísir.

Ísland er í fjögurra liða riðli með Eistlandi, Lúxemborg og Búlgaríu, í C-deild Þjóðadeildarinnar, eftir tap í umspili gegn Kósovó í mars 2025, í fyrstu leikjunum undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar.

Hópurinn hans þarf að spila fjóra leiki á ellefu dögum, eftir breytingarnar sem gerðar hafa verið á landsleikjadagatalinu. Síðustu tveir leikirnir í riðlinum verða svo í nóvember.

Leikir Íslands í C-deild Þjóðadeildar:

  • 26. sept kl. 16: Ísland - Eistland
  • 29. sept kl. 18:45: Lúxemborg - Ísland
  • 3. okt kl. 16: Ísland - Búlgaría
  • 6. okt kl. 18.45: Eistland - Ísland
  • 13. nóv kl. 19.45: Búlgaría - Ísland
  • 16. nóv kl. 17: Ísland - Lúxemborg

Ísland þarf að vinna riðilinn til þess að komast beint upp í B-deild á næstu leiktíð, sem hefst eftir EM 2028, og þá gæti sigur í riðlinum mögulega gagnast í baráttunni um sæti á Evrópumótinu. 

Liðið í 2. sæti riðilsins fer í umspil um sæti í B-deild en liðin í 3. og 4. sæti sitja eftir í C-deild sem þá verður neðsta deildin í þriggja deilda fyrirkomulagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×