Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Valur Páll Eiríksson skrifar 15. september 2026 23:02 Óvissa er um framhaldið hjá Jon Rahm og félögum. Getty/Michael Reaves LIV-mótaröðin í golfi stendur á barmi gjaldþrots og óvíst um framtíð mótaraðarinnar eftir að Sádar drógu fjárframlög til hennar til baka. Óvissa er um framtíð kylfinga innan LIV sökum þessa.
LIV skuldar kylfingum á mótaröðinni um 45 milljónir dala og ljóst að mótaröðin leggst af ef ekki finnast nýir fjárfestar til að halda henni gangandi. Þetta skapar skiljanlega óvissu hjá sterkum kylfingum sem gengu til liðs við LIV á sínum tíma. Stofnun mótaraðarinnar olli miklu fjaðrafoki og erjum við PGA-mótaröðina, sem og mótaraðir í Evrópu. Nú þegar kylfingar sem áður voru á PGA-mótaröðinni og telja má nógu sterka til að keppa þar standa frammi fyrir aflagningu LIV er því velt upp hvort bandaríska mótaröðin taki við þeim. PGA hefur þegar lagt til breytingar á mótaröðinni sem taka gildi árið 2028 og fókusinn er þar samkvæmt yfirmönnum þar á bæ. Engin leið hefur verið lögð fyrir LIV-kylfinga að snúa aftur. „Þar sem við stöndum í dag erum við ekki að skoða það að opna leiðir fyrir meðlimi að snúa aftur, eins og sást í janúar,“ segir Brian Rolapp, framkvæmdastjóri PGA. Þar vísar hann til þess að Brooks Koepka gat samið um að snúa aftur á PGA frá LIV í byrjun árs. Jon Rahm, Bryson DeChambeau og Cameron Smith höfnuðu allir því tækifæri þá. „Það er langur lagalegur vegur sem þarf að feta áður en hlutir koma almennilega í ljós,“ sagði Rahm í viðtali um málið. „Ég get eiginlega ekki gefið svar um framtíðina akkúrat núna.“ Hætti leikmenn á LIV er besta leiðin inn á PGA líklega sú að taka þátt í DP mótaröðinni. Tíu efstu á þeirri mótaröð fá sæti á PGA eins og staðan er í dag, en það kann að breytast með tíð og tíma.
LIV-mótaröðin Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira