Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. ágúst 2026 11:19 Áslaug Arna sat lengi á þingi áður en hún fór Bandaríkjanna. Vísir/Vilhelm Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, er farin að slá sér upp með Jónasi A. Aðalsteinssyni húðlækni. Þau mættu saman í brúðkaup Margrétar Bjarnadóttur og Ísaks Ernis Kristinssonar sem gengu í það heilaga í Skálholti í gær.
Manhattan-eyja í New York er meðal þess sem sameinar þau Áslaugu Örnu og Jónas. Áslaug hélt vestur um haf sumarið 2025 til að leggja stund á meistaranám í alþjóðlegri opinberri stjórnsýslu við hinn virta Columbia University. Jónas var búsettur vestan hafs þar sem hann var í sérnámi í húðmeinafræði við Mount Sinai-háskólasjúkrahúsið í New York. Þann 1. september 2025 var tilkynnt að Jónas hefði tekið að sér stöðu yfirlæknis húð- og kynsjúkdóma á Landspítalanum og varð um leið prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Jónas lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og doktorsprófi í læknavísindum frá sama skóla árið 2021. Hann sérhæfði sig í húðlækningum við University of Connecticut School of Medicine og jafnframt sérnámi í húðmeinafræði frá Mount Sinai í New York þar sem hann starfaði síðar. Móðir Jónasar er Ásdís Halla Bragadóttir. Í tíð Áslaugar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, réði hún Ásdísi Höllu sem verkefnastjóra og var svo tilkynnt að hún yrði tímabundið sett ráðuneytisstjóri. Umboðsmaður Alþingis komst hins vegar að því að Áslaugu hefði verið óheimilt að setja Ásdísi Höllu sem ráðuneytisstjóra án auglýsingar. Það er óhætt að segja að Áslaug Arna standi á tímamótum. Hún fór í leyfi frá þingstörfum til að sinna náminu í New York og ákvað svo í byrjun sumars að kveðja Alþingi. Hún hafði þá verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins í áratug. Nýlega réð hún sig til íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Fenris Creations, áður CCP, og verður starfsmaður á skrifstofu fyrirtækisins í London.
Ástin og lífið Tímamót Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fleiri fréttir Nablinn leggur bleyjuna á hilluna Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira