Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. ágúst 2026 06:39 Dolly á sviði árið 1976. Getty/David Redfern Tónlistarkonan og mannvinurinn Dolly Parton lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Frá þessu greindi fjölskylda hennar í tilkynningu í gær.
Að sögn talsmanns Parton var hún lögð inn á Vanderbilt-Ingram Cancer Center í Nashville á föstudag. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir um veikindin sem leiddu til dauða tónlistarkonunnar. Parton frestaði tónleikaröð í Las Vegas í fyrra vegna ótilgreindra veikinda sem sögð voru kalla á að hún dveldi nær heimili sínu í Tennessee vegna meðferðar. Söngkonan og lagahöfundurinn tilkynnti svo í vor að ekkert yrði af tónleikaröðinni og sagðist þá hafa verið að glíma við veikindi tengd nýrunum, meltingarfærunum og ónæmiskerfinu. Parton hafði áður greint frá því að hafa átt erfitt með að huga að eigin heilsu á sama tíma og hún annaðist eiginmann sinn, Carl Dean, í hans veikindum. Dean lést í mars 2025. Hún var hins vegar alltaf upplitsdjörf og bjartsýn eins og hennar var von og vísa og sagði í skilaboðum til aðdáenda sinna síðasta haust að hún hefði ekki í hyggju að setjast í helgan stein. Það liggur ekki fyrir hvenær Parton greindist með krabbamein en fyrir rúmri viku afboðaði hún sig á viðburð í skemmtigarðinum Dollywood. Þá sagðist hún þjást af svima og vera að berjast við ofþornun. Tónlistarkonan sagði hins vegar við People nokkrum dögum áður en hún lést að hún væri enn við störf. „Það er enn svo margt sem mig langar að gera, þannig að ég ætla að halda áfram að vinna eins lengi og ég get til að sjá það allt verða að raunveruleika,“ sagði hún.
Hollywood Bandaríkin Andlát Dolly Parton Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning RJ Mitte er látinn Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira