Fótbolti

Norður­löndin lýsa yfir van­trausti á Infantino

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Þorvaldur Örlygsson er formaður KSÍ.
Þorvaldur Örlygsson er formaður KSÍ. vísir

Knattspyrnusambönd Íslands, Danmerkur, Færeyja, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um vantraust á Gianni Infantino, forseta FIFA.

KSÍ birti yfirlýsingu á heimasíðu sinni nú í morgun sem má lesa hér fyrir neðan.

KSÍ birti yfirlýsingu á heimasíðu sinni nú í morgun þar sem lýst er alvarlegum áhyggjum af stjórnarháttum og ákvarðanatöku í æðstu lögum FIFA. Í yfirlýsingunni segir að Norðurlöndin standi þétt að baki UEFA og þeim aðgerðum sem aðildarsambönd UEFA hafa lagt til.

Einnig er farið fram á fullvissu um að „keppnir á vegum samtakanna verði aldrei aftur opnaðar fyrir einkaeignarhald,“ en nýlega var uppljóstrað um áætlanir Infantino til að selja hlut í keppnum FIFA, meðal annars heimsmeistaramótinu, til einkafjárfesta.

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.

Sameiginleg yfirlýsing knattspyrnusambanda á Norðurlöndum um FIFA

Knattspyrnusambönd Norðurlandanna sex hafa misst traust á forseta FIFA og hafa alvarlegar áhyggjur af stjórnarháttum og ákvarðanatöku í æðstu lögum samtakanna.

Norrænu knattspyrnusamböndin standa þétt að baki UEFA og þeim aðgerðum sem aðildarsambönd UEFA hafa sameiginlega lagt til. Við væntum þess að FIFA veiti bindandi fullvissu fyrir því að stjórnarhættir FIFA eða keppnir á vegum samtakanna verði aldrei aftur opnaðar fyrir einkaeignarhald.

Jafnframt styðja norrænu samböndin þá kröfu sem sett hefur verið fram af AFC, CONCACAF og UEFA um að fram fari algjörlega óháð úttekt á atburðarásinni í kringum FIFA Forward Enterprise (FFE) tillöguna.

Við skorum einnig á FIFA að hefja víðtæka og sjálfstæða úttekt á því hvort stjórnarhættir og skipulag FIFA tryggi það sjálfstæði, aðhald, gagnsæi og þá ábyrgðarskyldu sem stefnt var að þegar umfangsmiklar umbætur á stjórnarháttum FIFA voru boðaðar og innleiddar árið 2016.

Yfirlýsingin á ensku:

The six Nordic football associations have lost confidence in the FIFA President and have serious concerns about the governance and high-level decision-making of the organisation.

The Nordic football associations stand firmly with UEFA and the measures suggested by its National Associations in unison. We expect that FIFA provides binding assurances that FIFA will never again open its governance or competitions to private ownership. We also support the demand put forward by AFC, CONCACAF and UEFA, for a fully third-party review of the events surrounding the FIFA Forward Enterprise proposal.

We also call for FIFA to initiate a comprehensive independent review of whether FIFA’s governance framework provides the independence, checks and balances, transparency and accountability, that were intended when FIFA adopted its reform programme in 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×