Enski boltinn

Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kiernan Dewsbury-Hall fagnar eftir að hafa komið Everton yfir gegn Crystal Palace skömmu fyrir hálfleik.
Kiernan Dewsbury-Hall fagnar eftir að hafa komið Everton yfir gegn Crystal Palace skömmu fyrir hálfleik. getty/Peter Byrne

Everton fer vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en liðið vann 2-0 sigur á Crystal Palace á heimavelli í 1. umferðinni í dag.

Þetta er annað tímabil Everton á Hill Dickinson-leikvanginum. Í fyrra vann liðið aðeins sex af nítján heimaleikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en það byrjar vel heima fyrir á þessu tímabili.

Mörkin tvö í dag komu sitt hvoru megin við hálfleikinn.

Palace var hættulegri aðilinn í fyrri hálfleik en á 42. mínútu fékk Kiernan Dewsbury-Hall boltann utarlega vinstra megin í vítateig Palace. Hann lét vaða og skoraði með föstu skoti í fjærhornið.

Á 53. mínútu sendi Iliman Ndiaye fyrir frá hægri á Thierno Barry sem skoraði með skalla af stuttu færi.

Pierre Sage stýrði Palace í fyrsta sinn í deildarleik í dag. Hann sá sína menn búa til fín færi og boltinn fór tvisvar sinnum í markrammann hjá Everton í fyrri hálfleik. En Ernirnir höfðu ekkert upp úr krafsinu.

Næsti leikur Everton er gegn Preston í 2. umferð deildabikarsins á miðvikudaginn. Næsti deildarleikur liðsins er gegn Bournemouth á laugardaginn eftir viku. Daginn áður mætir Crystal Palace Manchester City á Selhurst Park.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×