Fótbolti

Glódís skoraði í stór­sigri Bayern

Stefán Árni Pálsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir er landsliðsfyrirliði Íslands. 
Glódís Perla Viggósdóttir er landsliðsfyrirliði Íslands.  Getty/Bradley Collyer

Glódís Perla Viggósdóttir skoraði eitt marka Bayern München þegar liðið vann sannfærandi 4-1 sigur á nýliðum Union Berlin í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Glódís, sem er fyrirliði Bayern, lék allan leikinn í hjarta varnarinnar en lét einnig til sín taka á hinum enda vallarins. Hún kom Bayern í 3-0 á 60. mínútu og fagnaði þar með sínu fyrsta deildarmarki á tímabilinu.

Klara Bühl kom Bayern yfir á 26. mínútu með beinu aukaspyrnumarki áður en Pernille Harder tvöfaldaði forskotið skömmu eftir hlé.

Glódís bætti svo þriðja markinu við á 60. mínútu og Bayern virtist þá hafa gert út um leikinn. Union náði þó að minnka muninn þegar Nele Bauereisen skoraði á 79. mínútu.

Sophie Proost innsiglaði svo 4-1 sigur Bayern með marki í uppbótartíma.

Um var að ræða fyrsta deildarleik Bayern á tímabilinu en liðið hafði þegar hafið keppnistímabilið með sigri á Wolfsburg í þýska ofurbikarnum um síðustu helgi. Bayern er ríkjandi meistari og stefnir á fimmta meistaratitilinn í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×