Konsa orðinn leikmaður Arsenal Aron Guðmundsson skrifar 21. ágúst 2026 09:16 Konsa fagnar hér með Declan Rice á HM í sumar. Þeir verða nú einnig liðsfélagar hjá Arsenal Vísir/Getty Enski landsliðsmaðurinn Ezri Konsa er orðinn leikmaður Arsenal. Hann er keyptur til Englandsmeistaranna frá Aston Villa fyrir um 51 milljón punda. Það er The Athletic sem greinir frá því núna í morgun að allt sé frágengið varðandi félagsskipti Konsa sem er fjölhæfur varnarmaður sem getur leyst bæði stöðu miðvarðar sem og bakvarðar. Konsa skrifar undir fjögurra ára samning við Arsenal og er ákvæði í samningnum um að hægt sé að framlengja hann um eitt ár. Englendingurinn er 28 ára gamall og hefur leikið lykilhlutverk í liði Aston Villa undanfarin tímabil. Hann vann Evrópudeildina með liðinu á síðasta tímabili. Þá var Konsa fastamaður í byrjunarliði Englands á HM í sumar. Englendingar komust í undanúrslit á mótinu. Í ljósi meiðsla William Saliba, sem hefur spilað stórt hlutverk í hjarta varnarinnar hjá Arsenal, var mikilvægt fyrir Englandsmeistarana að sækja annað púsl í varnarlínuna. Arsenal hefur titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar að liðið tekur á móti nýliðum Coventry City á Emirates leikvanginum. Leikurinn heft klukkan sjö og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Það er The Athletic sem greinir frá því núna í morgun að allt sé frágengið varðandi félagsskipti Konsa sem er fjölhæfur varnarmaður sem getur leyst bæði stöðu miðvarðar sem og bakvarðar. Konsa skrifar undir fjögurra ára samning við Arsenal og er ákvæði í samningnum um að hægt sé að framlengja hann um eitt ár. Englendingurinn er 28 ára gamall og hefur leikið lykilhlutverk í liði Aston Villa undanfarin tímabil. Hann vann Evrópudeildina með liðinu á síðasta tímabili. Þá var Konsa fastamaður í byrjunarliði Englands á HM í sumar. Englendingar komust í undanúrslit á mótinu. Í ljósi meiðsla William Saliba, sem hefur spilað stórt hlutverk í hjarta varnarinnar hjá Arsenal, var mikilvægt fyrir Englandsmeistarana að sækja annað púsl í varnarlínuna. Arsenal hefur titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar að liðið tekur á móti nýliðum Coventry City á Emirates leikvanginum. Leikurinn heft klukkan sjö og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport. Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar: Föstudagurinn 21. ágúst 19.00 Arsenal - Coventry Laugardagurinn 22. ágúst 11.30 Hull - Man. Utd 14.00 Everton - Crystal Palace 14.00 Ipswich - Sunderland 14.00 Nott. Forest - Leeds 16.30 Brentford - Tottenham Sunnudagurinn 23. ágúst 13.00 Brighton - Aston Villa 13.00 Man. City - Bournemouth 15.30 Newcastle - Liverpool Mánudagurinn 24. ágúst 19.00 Fulham - Chelsea
Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar: Föstudagurinn 21. ágúst 19.00 Arsenal - Coventry Laugardagurinn 22. ágúst 11.30 Hull - Man. Utd 14.00 Everton - Crystal Palace 14.00 Ipswich - Sunderland 14.00 Nott. Forest - Leeds 16.30 Brentford - Tottenham Sunnudagurinn 23. ágúst 13.00 Brighton - Aston Villa 13.00 Man. City - Bournemouth 15.30 Newcastle - Liverpool Mánudagurinn 24. ágúst 19.00 Fulham - Chelsea
Arsenal FC Enski boltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti „Þetta var alltaf mitt mark“ Fótbolti „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Sjá meira