Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2026 10:34 Bjarni Mark Antonsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson hafa verið liðsfélagar hjá Val í rúm tvö ár en nú er Bjarni á förum til Svíþjóðar og Tryggvi mun fara heim til ÍA eftir tímabilið. Vísir/Guðmundur Allt útlit er fyrir að fótboltamaðurinn Bjarni Mark Duffield sé á förum frá Val og snúi aftur til Svíþjóðar, til liðs við Trelleborg, á næstu dögum.
Bjarni ferðaðist ekki heim með Valsliðinu eftir leikinn við Nordsjælland í Danmörku í síðustu viku, þegar liðið féll úr leik í undankeppni Sambandsdeildarinnar, heldur hélt hann til suðurhluta Svíþjóðar og æfði þar með Trelleborg í tvo daga. Tilgangurinn var að skoða aðstæður hjá félaginu en Bjarni hélt svo heim til Íslands og gæti því mögulega spilað með Val í kvöld þegar liðið mætir KA. Ef ekkert óvænt kemur upp á mun Bjarni svo hins vegar ganga í raðir Trelleborgar og spila þar undir stjórn Andreas Granqvist, fyrrverandi landsliðsmanns Svíþjóðar til margra ára. Bjarni viðurkenndi í samtali við sænska miðilinn Trelleborgs Allehanda að sennilega hefði hann nú þegar spilað sinn síðasta leik fyrir Val. Aðspurður hvort hann hefði saknað Svíþjóðar svaraði hann: „Já, ég á systur í Kristianstad. Við eigum í góðu sambandi og bjuggum áður nálægt hvort öðru.“ Systir hans er Tinna Mark Duffield sem er sjúkraþjálfari fótboltaliðs Kristianstad og eiginkona handboltamannsins Ólafs Guðmundssonar sem lék við góðan orðstír hjá samnefndu félagi. Trelleborg er í sænsku C-deildinni en á hraðleið upp í næstefstu deild því liðið er efst í suðurhluta C-deildarinnar, fjórum stigum á undan næsta liði. Bjarni gæti því átt þátt í að komast með liðinu upp um deild í haust og þjálfarinn Granqvist hefur mikla trú á honum: „Ég þekki til hans frá fyrri tíð. Góður leikmaður en fyrst og fremst ótrúlegur leiðtogi með frábæran karakter,“ sagði Granqvist við Trelleborgs Allehanda. Bjarni, sem er þrítugur miðjumaður, hefur verið leikmaður Vals síðustu tvö ár. Samningur hans við félagið átti að renna út í lok þessa árs. Bjarni er uppalinn á Siglufirði hjá KF og lék svo með KA en hefur einnig leikið með Kristianstad og Brage í Svíþjóð, og Start í Noregi, auk þess að hafa leikið þrjá A-landsleiki.
Valur Sænski boltinn Besta deild karla Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Fleiri fréttir Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Sjá meira